Ný leyniregla kölluð P3 gerir Berlusconi lífið leitt 11. ágúst 2010 06:42
Gamall draugur frá fyrri tíð gerir Slivio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu lífið leitt þessa daganna. Leynireglur og félög eru samofin sögu Ítalíu síðustu aldirnar. Nú er ein slík leyniregla komin í sviðsljós fjölmiðla en hún þykir minna um margt á frímúrararegluna P2. P2 tókst á árunum í kringum 1980 að koma meðlimum sínum fyrir í mörgum lykilstöðum í ítalska stjórnkerfinu. Meðlimirnir voru stjórnmálamenn, herforingjar, leyniþjónustumenn og Berlusconi núverandi forsætisráðherra. Vegna samlíkingarinnar er hin nýja leyniregla kölluð P3, að því er segir í umfjöllun tímaritsins The Economist um málið. Meðlimir hennar eru meðal annarrs sagðir vera Marcello Dell´Utri sem stendur í réttarhöldum vegna tengsla sinna við mafíuna og Flavio Carboni. Carboni er viðskiptamaður sem eitt sinn var ákærður fyrir morðið á bankamanninum Roberto Calvi. Sá var háttsettur meðlimur P2 á sínum tíma. Carboni var sýknaður af morðákærunni en er nú kominn aftur fyrir dómara vegna P3 málsins. Meðal þess sem P3 er gefið að sök er að hafa rannsakað kynlíf andstæðinga Berlusconi í stjórnmálum, reynt að hafa áhrif á viðkvæmar rannsóknir í spillingarmálum og reynt að hafa áhrif á afstöðu dómaranna sem kváðu upp úrskurð um hvort Berlusconi sem forsætisráðherra væri undanskilinn lögsóknum. Fram kemur í The Economist að meðlimir P3 tala ætíð um foringja sinn sín í millum undir dulnefninu Caesar. Upplýsingar úr símhlerunum benda hinsvegar til að Caesar sé ekki Berlusconi. Þess má einnig geta að í kjölfar P2 málsins voru sett lög á Ítalíu sem banna starfsemi slíkra leynireglna.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Sjá meira