„Ekkert til sem heitir algjör aðskilnaður ríkis og kirkju“ 6. júní 2010 12:45 Mynd/GVA
Það er ekkert til sem heitir algjör aðskilnaður ríkis og kirkju, segir biskup Íslands. Allir hafi þó rétt á því að mótmæla og hafa skoðanir. Í gær söfnuðust 30 manns saman við Hallgrímskirkju á kröfufundi um aðskilnað ríkis og kirkju. Áformað er að mótmæla reglulega í sumar, en lítið hefur farið fyrir umræðum um aðskilnað ríkis og kirkju undanfarið. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, viðurkennir rétt mótmælendanna til að hafa þessa skoðun. Hann segir hins vegar ekkert vera til sem heiti algjöran aðskilnað ríkis og kirkju, nema kannski í löndum á borð við Norður-Kóreu þar sem trúarbrögð séu bönnuð. „Það er ekkert til sem heitir algjör aðskilnaður ríkis og kirkju vegna þess að ríki og kirkja og trú og samfélag eru svo samofin. Það eru til ótal mismunandi módel af slíkri samvinnu eða slíku sambandi," segir Karl. Hann tekur sem dæmi að í Bandaríkjunum njóti trúfélög margvíslegs stuðnings, þó það sé kallað aðskilnaður. Samfélagið þurfi þó á kirkjunni að halda. „Í því samfélagi sem við lifum í nú í dag á þessum tímum er afar mikilvægt að grundvallarstofnanir í þjóðfélaginu sem okkar þjóðfélag hefur byggt á þ.e. kirkjan, skólar, heimilin og ríkisvaldið, þessar grundvallarstofnanir að þær séu sterkar," segir Karl.
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Eldur kviknaði í Strætó Innlent Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Innlent „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Innlent Fleiri fréttir Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Sjá meira