Innlent

Sextán ára fangelsi fyrir manndráp í Reykjanesbæ

Ellert Sævarsson var í dag dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Reykjanesbæ í maí síðastliðinn. Við réttarhöldin játaði hann að hafa sparkað í höfuð og líkama mannsins og kastað kantstreini í höfuð hans. Banamein hins látna voru miklir höfuðáverkar. Engin ástæða þótti til að draga sakhæfi Ellerts í efa en hann gat ekki með viðhlýtandi hætti skýrt af hverju hann veittist að manninum og bar hann við minnisleysi um aðdraganda árásarinnar.

Hæfileg refsing var því að mati dómarans 16 ár og kemur gæsluvarðhaldsvist sem staðið hefur óslitið frá 9. maí til frádráttar. Ellert er einnig gert að greiða sakarkostnað vegna málsins og rúmar þrjár milljónir króna í skaðabætur.


Tengdar fréttir

Suðurnesjamorðið: Grét þegar hann lýsti morðinu

Það var rafmagnað andrúmsloft í morðréttarhöldunum yfir Ellerti Sævarssyni sem hefur játað að hafa orðið Hauki Sigurðssyni að bana í byrjun maí. Aðstandendur Hauks sátu á fyrsta bekk Héraðsdóms Reykjaness í fullsetnum réttarsal.

Morð í Reykjanesbæ: Yfirheyrslur hafnar - málið á viðkvæmu stigi

Yfirheyrslur eru hafnar yfir Ellerti Sævarssyni, 31 árs gömlum manni sem er grunaður um að hafa orðið karlmanni á sextugsaldri að bana aðfaranótt laugardags. Lögreglan á Suðurnesjum verst allra frétta af málinu og hefur ekki gefið upp hvort Ellert hafi játað verknaðinn.

Manndráp í Reykjanesbæ: Þingfesting í héraði

Þingfest hefur verið ákæra á hendur rúmlega þrítugum manni sem varð manni á sextugsaldri að bana í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum. Í ákæruskjali sem lagt var fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag kemur fram að maðurinn hafi veist harkalega að fórnarlambi sínu með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar af áverkum sínum. Saksóknari telur brotið varða við 211. almennra hegningarlaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×