Innlent

Hjólhýsi fuðraði upp á Ártúnshöfða

Hjólhýsi gjöreyðilagðist í eldi þar sem það stóð á stæði skammt frá bensínstöð N-1 á Ártúnshöfða.

Eldsins varð vart laust fyrir klukan tvö í nótt og skíðlogaði það þegar slökkviliðið kom á vettvang og munaði minnstu að eldurinn teygði sig í nálægan bíl.

Slökkvistarf gekk vel og skapaðist ekki hætta, þar sem hjólhýsið stóð langt frá bensíndælunum. Eldsupptökk eru ókunn, en grunur leikur á að kveikt hafi verið í því.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×