Sigrún Elsa: „Þetta er bara kjaftæði og ekki boðlegt“ 3. júní 2010 11:27 Sigrún Elsa Smáradóttir er ósátt við seinaganginn. „
Við spurðum um þetta í janúar og ítrekað í borgarráði" segir Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitunnar, um yfirvofandi gjaldskrárhækkun Orkuveitunnar á heitu vatni. Fréttablaðið greindi frá því í dag að það standi til að hækka verð á heitu vatni um 37 prósent á næstu fimm árum. Sigrún Elsa segir að fulltrúar Samfylkingarinnar hafa fyrst spurt um hugsanlega hækkun í janúar, eða fyrir fjórum mánuðum síðan. Tilefnið var í tengslum við samþykkt á nýrri stefnumótun og eigendastefnu Orkuveitunnar. Hún segir að svör hafi ekki borist við fyrirspurnunum fyrr en nú en hún telur Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fráfarandi borgarstjóra, ábyrga fyrir því að engin svör hafi fengist. Á minnisblaði sem Sigrún Elsa hefur undir höndum kemur fram að útreikningarnir hafi verið tilbúnir mánudaginn eftir kosningar. „Það er ekki hægt að segja mér að það hafi tekið fjóra mánuði að vinna þetta og ef það er raunin er það líka merki um algjört viljaleysi," segir Sigrún Elsa sem útskýrir að ekki sé um flókna útreikninga að ræða. Stjórnarformaður Orkuveitunnar, Guðlaugur Sverrisson, sagði í Fréttablaðinu í dag að það hefði einfaldlega ekki tekist að vinna málið hraðar. Sigrún Elsa segir að upplýsingunum hafi beinlínis verið haldið frá kjósendum til þess að ekki væri varpað ljósi á erfiða fjárhagsstöðu Orkuveitunnar fyrir kosningar, en gjaldskrárhækkunin er tilkomin til þess mæta erfiðleikum í rekstri fyrirtækisins. „Þetta er bara kjaftæði og ekki boðlegt," segir Sigrún Elsa sem er harðorð enda fjórir mánuðir síðan fyrsta fyrirspurnin lá fyrir í borgarráði.
Tengdar fréttir Hækka þarf heitt vatn um 37 prósent Eigi markmið fimm ára áætlunar um fjárþörf Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að nást, þarf mikla hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins. Á það við um allt nema kalda vatnið. Þar mun gjaldskrá standa í stað. 3. júní 2010 06:00 Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að ráðast á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira
Hækka þarf heitt vatn um 37 prósent Eigi markmið fimm ára áætlunar um fjárþörf Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að nást, þarf mikla hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins. Á það við um allt nema kalda vatnið. Þar mun gjaldskrá standa í stað. 3. júní 2010 06:00