Innlent

Segir Kredia ekki herja á 18 ára ungmenni

Leifur Haraldsson, framkvæmdastjóri sms-lánafyrirtækisins Kredia, hefur óskað eftir fundi með viðskiptaráðherra.
Leifur Haraldsson, framkvæmdastjóri sms-lánafyrirtækisins Kredia, hefur óskað eftir fundi með viðskiptaráðherra.
Leifur Haraldsson, framkvæmdastjóri sms-lánafyrirtækisins Kredia, segir það rangt hjá framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna að Kredia hafi sent markpóst á 18 gömul ungmenni. Hið rétta sé að markpóstur var sendur til tvítugs fólks.

Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, sagði þetta í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Hún sagði að markaðssetning til ungmenna væri siðlaus.

Leifur segir í samtali við Vísi.is að fyrirtækið herji ekki á 18 ára ungmenni. Sá aldurshópur telji einungis 1,4% af viðskiptavinum Kredia.

Sms-lánin eru of stutt til flokkast sem neytendalán en þau eru til 15 daga og heyra því ekki undir Fjármálaeftirlitið. Leifur segist taka heilshugar undir þá gagnrýni að umgjörðin á sms lánunum þurfi að skýra betur.

Aðspurður hvort það kæmi sér illa fyrir Kredia ef fyrirtækið yrði sett undir Fjármálaeftirlitið segir hann "alls ekki."

Hann segir reyndar að Kredia heyri að vissu leyti undir Fjármálaeftirlitið. „Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með fjarsölu á fjármálaþjónustu og við uppfyllum öll þau skilyrði," segir hann.

Hefur óskað eftir fundi með ráðherra

Leifur segist hafa óskað eftir fundi með félagsmálaráðherra í febrúar en ekkert hafi orðið af þeim fundi. Nú hefur hann komist að því að þessi málefni heyri undir viðskiptaráðuneytið og hefur því óskað eftir fundi með efnahags- og viðskiptaráðherra, til þess að fara yfir þessi mál og koma á betri rammi utanum þessa starfsemi.

„Við höfum haft áhyggjur af því að óábyrgir aðilar komi á markaðinn," segir hann.

Leifur segist hafa átt fundi með talsmanni neytenda, fyrst í október í fyrra. Einnig hafi hann rætt við Neytendastofu og Fjármálaeftirlitið.

Hann segist skilja vel áhyggjur fólks af sms-lánum. Reynslan af þeim á Norðurlöndum sé ekki nógu góð; þar hafi ungmeni lent í skuldavandræðum. Hann segir hinsvegar viðskiptamódel Kredia og Hraðpeninga, sem er keppinauturinn, komi í veg fyrir slíkt.

Fyrst sé einungis hægt að fá 10 þúsund króna lán, gangi það vel hækkar lánsheimildin í 20 þúsund, því næst 30 þúsund og fer hæst í 40 þúsund. Skuldin verði því aldrei hærri en 49.510 krónur með viðskiptakostnaði.




Tengdar fréttir

Smálán til ungmenna siðlaus

Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir markaðssetningu smálánafyrirtækja til ungmenna siðlausa. Neytendasamtökin hafi ítrekað skorað á viðskiptaráðherra að bregðist við málinu en engin viðbrögð fengið

Neytendasamtökin berjast gegn SMS-lánum

Neytendasamtökin segja sláandi að smálánafyrirtækið Kredia skuli markaðssetja rándýr skammtímalán grimmt, skömmu eftir fjármálahrunið. Þau harma þá þróun sem er að verða á lánamarkaði. Samtökin sendu ítrekun til viðskiptamálaráðherra þar sem óskað er eftir að ráðherra bregðist við þessum nýju fyrirtækjum á lánamarkaði með breytingu á lögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×