Mikilvægt að gera upp Íraksmálið 31. janúar 2010 18:56
Það er kominn tími á að við áttum okkur á því hvernig sú ákvörðun að lýsa yfir stuðningi við innrásina í Írak var tekin, hver tók hana, með hvaða hætti og af hverju. Þetta segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Vaxandi áhugi er meðal þingmanna á að rannsóknarnefnd verði skipuð um aðdraganda þess að Ísland lýsti fyrir stuðningi við innrásina í Írak árið 2003, en sú ákvörðun hefur verið umdeild allar götur síðan. Munu Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Ögmundur Jónasson, væntanlega ásamt fleiri þingmönnum, leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis á Alþingi í byrjun vikunnar. „Við erum að gera margt upp þessa dagana Íslendingar. Þetta er mál sem hefur legið á mér lengi og meirihluta þjóðarinnar og mér finnst einfaldlega kominn tími á að við áttum okkur á hvernig þessi ákvörðun var tekin, aðdragandann, hverjir tóku hana, með hvaða hætti og af hverju," segir Steinunn Valdís. Steinunn Valdís vill að nefndin verði þingmannanefnd enda eigi þingið sjálft að axla ábyrgðina og fara yfir málið á eigin spýtur. Í yfirlýsingu sem Halldór Ásgrímsson sendi frá sér árið 2005 segir að í kjölfar ríkisstjórnarfundar 18. mars 2003 hafi hann og þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, ákveðið að styðja aðgerðir í Írak undir forystu Bandaríkjamanna og Breta. Hvað finnst þér vanta upp á það sem hefur komið fram í málinu nú þegar? „Mér finnst í raun allt vanta upp á borðið í þessu málum. Það þarf að fá öll gögn upp borðið. Það þarf að kalla þá aðila fyrir sem bera ábyrgð á því. Ég tel að þetta eigi að fara fram fyrir opnum tjöldum þannig að almenningur geti fylgst með. Við eigum rétt á því að vita og átta okkur á því af hverju þessi ákvörðun var tekin ekki síst til þess að við getum lært af mistökunum og séð til þess að svona gerist ekki aftur," segir Steinunn Valdís.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Sjá meira