Innlent

Varað við óveðri á Suðurlandi

Vegagerðin varar við óveðri á Suðurlandi frá Vík í Mýrdal og vestur undir Markarfljót. Einnig er varað við óveðri á Vestfjörðum á Hálfdáni, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Á Suðausturlandi er óveður við Sandfell í Öræfum.

Vegir eru að mestu auðir á Norðurlandi vestra en á Öxnadalsheiði er hálka og skafrenningur. Í Þingeyjarsýslum er víða nokkur hálka eða snjóþekja.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að á Austurlandi sé þæfingsfærð á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði. Vatnsskarð eystra er ófært. Annars er víða  snjóþekja eða krapi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×