Ekkert ákveðið um stækkun álversins 25. janúar 2010 04:00 Rio Tinto Alcan hefur ekki metið orkuöflun eða fjármögnun fyrir mögulega stækkun álvers. Verði deiliskipulagstillaga þar um samþykkt í íbúakosningu verður staðan könnuð. FRÉTTABLAÐIÐ/gva
Ekki er tryggt að ráðist verði í stækkun álversins í Straumsvík, þó það yrði samþykkt í íbúakosningu. Fyrirtækið mun athuga málið komi sú staða upp. Stækkun er enn talinn hagkvæmur kostur, segir Ólafur Teitur Guðnason hjá Rio Tinto Alcan. Hann segir að tryggja þurfi fjármagn og orku fyrir verkefnið, en slíkt hafi ekkert verið skoðað. Ólafur Teitur ítrekar að frumkvæðið núna komi algjörlega frá íbúum bæjarins. „Við höfðum hug á því [stækkun] en höfum í sjálfu sér ekki tekið neina afstöðu til þess hve vænlegt þetta er núna. Það þyrfti auðvitað að uppfæra þær athuganir sem höfðu farið fram og kostuðu tvo til þrjá milljarða. Ef það lægi fyrir að það væri ekki í andstöðu við vilja bæjarins, en það er það eins og staðan er nú, þá myndum við vilja skoða verkefnið aftur." Valgerður Halldórsdóttir, formaður Sólar í Straumi, gagnrýnir málsmeðferð bæjaryfirvalda. Enginn hafi haft samband við samtökin, hvorki í kjölfar kosningarinnar 2007 né í aðdraganda nýrrar kosningar nú. Hún hefði talið það eðlilegt að aðilar málsins settust niður og ræddu þætti þess. Hún hafi lesið um það í blöðum að til stæði að fara í nýjar kosningar. „Þetta er ekki samræmi við yfirlýsingar bæjarstjóra sem sagði fyrir kosningarnar að niðurstaða þeirra yrði látin gilda." Hún segir þó ekkert banna það að fara í nýjar kosningar. Þá telur Valgerður ekki heppilegt að kjósa samhliða um stækkun álvers og Icesave, en Lúðvík Geirsson bæjarstjóri hefur nefnt það. Bæði málin séu mikilvæg og þarfnist upplýsingagjafar við. Verið sé að gera lítið úr kjósendum með þessu. Valgerður segir einnig ótímabært að kjósa um málið þar sem engin vissa sé fyrir því að orka eða fjármagn sé tryggt fyrir verkefnið. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira