Paul Rames og fjölskylda fengu dvalarleyfi 24. mars 2010 18:52
Paul Ramses og hans fjölskylda voru himinlifandi yfir því að fá loks afgreiðslu sinna mála eftir tæplega tveggja ára bið en Útlendingastofnun veitti þeim í dag dvalarleyfi á grundvelli verndar gegn ofsóknum í heimalandi þeirra. Þau segja þungu fargi af sér létt við niðurstöðuna og eru þakklát fyrir að geta nú lifað eðlilegu lífi á Íslandi. Barátta Paul Ramses og fjölskyldu hans við íslensk útlendingayfirvöld fór ekki framhjá almenningi. Honum var vísað úr landi og fluttur til Rómar í júlí fyrir tveimur árum og konan hans Rosemary var skilin eftir á Íslandi með nýfæddan son þeirra Fídel Smára. Íslendingar mótmæltu brottvísuninni harðlega. Með hjálp Katrínar Theodórsdóttur lögmanns þeirra og stuðningsmanna fékk hann að snúa aftur til Íslands. En svo tók við tæplega tveggja ára bið sem lauk í dag þegar Útlendingastofnun veitti honum og fjölskyldu hans dvalarleyfi. Paul segir að þessi tími hafi verið afar erfiður fyrir sig. Hann finni nú frið og geti hugsað um morgundaginn. Paul var synjað um pólitískt hæli en fékk dvalarleyfi á grundvelli verndar gegn ofsóknum í hans heimalandi. Ekki má samkvæmt lögum senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem á við hans tilfelli. Bæði eru þau í fullu starfi, Paul starfar í eldhúsi á veitingastað og hún sem gengilbeina á hóteli. Þau eiga von á sínu öðru barni eftir fimm mánuði. „Við viljum vera hér til dauðadags. Við lítum á Ísland sem heimaland okkar," segir Rosemary Atieno Odhiambo, eiginkona Paul Ramses.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira