Aston Villa áfram í úrslitaleikinn eftir ótrúlegan tíu marka leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2010 18:13 James Milner og Stephen Warnock fagna einu marki Aston Villa í kvöld. Mynd/AFP
Aston Villa tryggði sér sæti í úrslitaleik enska deildarbikarsins eftir 6-4 sigur á Blackburn á heimavelli í seinni leik liðanna, Aston Villa vann fyrri leikinn 1-0 og þar með 7-4 samanlagt. Blackburn byrjaði leikinn frábærlega og komst í 2-0 en það reyndist vera skammgóður vermir því liðið missti mann útaf og síðan öll tök á leiknum. Nikola Kalinic kom Blackburn í 1-0 á 10. mínútu þegar hann skallaði í hnakkann á Stephen Warnock, fyrrum leikmanni Blackburn, og inn eftir hornspyrnu frá David Dunn. Nikola Kalinic bætti við öðru marki á 26. mínútu þegar hann fylgdi á eftir skalla Martin Olsson sem Brad Guza hálfvarði til hans í markteignum. Stephen Warnock minnkaði muninn í 2-1 á 30. mínútu með þrumuskoti úr teignum eftir fyrirgjöf frá Ashley Young. Tíu mínútum seinna var komin upp allt önnur staða eftir að James Milner jafnaði leikinn fyrir Aston Villa úr víti og Chris Samba fékk að líta rauða spjaldið fyrir brotið. Aston Villa var þá komið 3-2 innbyrðis og var manni fleiri síðustu 50 mínútur leiksins. Aston Villa komst síðan í 5-2 á fyrstu tólf mínútum seinni hálfleiks, fyrst eftir sjálfsmark Ryan Nelsen, svo með öðru marki James Milner í leiknum og loks með marki Emile Heskey eftir sendingu frá Milner. Martin Olsson minnkaði muninn í 5-3 aðeins mínútu síðar og Brett Emerton gerði enn betur sex mínútum fyrir leikslok þegar hann kom muninum niður í eitt mark, 5-4. Ashley Young gulltryggði hinsvegar sigur Aston Villa með marki í uppbótartíma.
Mest lesið Guardiola hótar að hætta Enski boltinn Gunnar Nelson fann neista frá fyrri tíð: „Smá vakning fyrir mig“ Sport „Að vinna Evrópudeildina mun ekki leysa öll okkar vandamál“ Fótbolti „Að besta dómarapar Íslands sitji upp í stúku finnst mér ansi skrýtið“ Handbolti „Manchester er heima“ Enski boltinn Þjálfar enn í skugga réttarhaldanna Sport Dagskráin í dag: Oddaleikur á Króknum og fleiri úrslitaleikir Sport „Verð aldrei trúður“ Fótbolti Beckham varar Manchester United við Enski boltinn Baldur mátaði sig við þá bestu og setur stefnuna á toppinn Handbolti Fleiri fréttir Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Sjá meira