Innlent

Vorhreinsun hefst í Reykjavík eftir helgi

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Vorhreinsun í Reykjavík hefst á mánudag eftir helgi í miðborginni og hverfum borgarinnar í umsjón framkvæmda- og eignasviðs og umhverfis- og samgöngusviðs. Starfsmenn hverfastöðva hefjast þá handa við almenna hreinsun á rusli á opnum svæðum, trjám og trjábeðum í borgarlandinu auk þess sem starfsmenn verða ráðnir tímabundið til starfa vegna verkefnisins. Þetta kemur fram í bókun sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur lögðu fram í borgarráði fyrr í dag.

Að auki verður hægt að ráða allt að 200 ungmenni til sérstakra hreinsunarstarfa í borgarlandinu í sumar með sambærilegum hætti og á síðasta ári. „Samstillt átak Reykjavíkurborgar og allra borgarbúa er forsenda þess að vel takist til en á sama tíma og Reykjavíkurborg efnir til átaksins eru borgarbúar hvattir til að snyrta og fegra umhverfið í nágrenni við heimili sín og vinnustaði,“ segir í bókun meirihlutaflokkanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×