Hafnar fullyrðingum Frjálslynda flokksins 3. febrúar 2010 03:00 Ólafur flutti í gær tillögu í borgarstjórn sem var samþykkt um að borgarfulltrúar upplýsi um fjárhagslega hagsmuni sína. Fréttablaðið/GVA „
Það er helber lygi að þarna sé um að ræða eitthvert einkahlutafélag mitt,“ segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans í Reykjavík, um tilkynningu sem Frjálslyndi flokkurinn sendi frá sér í gær. Ólafur telur tilkynninguna runna undan rifjum lítillar klíku í flokknum, sem trúlega samanstandi af færra fólki en séu á bak við Borgarmálafélag F-Lista í borginni. Í tilkynningunni áréttar Frjálslyndi flokkurinn að Ólafur sé ekki í flokknum og að heilsíðuauglýsing sem hann birti í Fréttablaðinu í gær sé ekki á vegum F-listans í borginni. „Auglýsingin er sögð í nafni Borgarmálafélags F-lista. Af því tilefni ítrekar Frjálslyndi flokkurinn að það félag hefur ekkert með Frjálslynda flokkinn að gera eða Borgarmálafélag Frjálslynda flokksins í Reykjavík. Félag það sem Ólafur kallar „Borgarmálafélag F-lista“ er einkahlutafélag sem Ólafur stofnaði á valdatíma sínum sem borgarstjóri til þess eins að færa til fjárstyrk af hálfu borgarinnar sem áður hefur jafnan runnið til Frjálslynda flokksins,“ segir í tilkynningunni. Ólafur segist furða sig á að fjölmiðlar hafi í gær kosið að éta upp „gamla lygi“ um Borgarmálafélagið. Hann bendir á að kjördæmaráð Frjálslynda flokksins hafi lýst eindregnum stuðningi við hann og gefur ekki mikið fyrir tilkynninguna sem send var út í gær. - óká
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Fleiri fréttir „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Sjá meira