Innlent

Merkingar á nautahakki ófullnægjandi

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Í of mörgum tilvikum eru merkingar á umbúðum fyrir nautahakk ekki í samræmi við gildandi reglur. Þessu verða kjötiðnaðarstöðvar að kippa í liðinn tafarlaust. Þetta er meðal niðurstaðna í gæðakönnun sem Landssamband kúabænda og Neytendasamtökin ákváðu að gera í framhaldi af umræðum um gæði á nautahakki. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðneytið styrkti verkefnið að hluta. Matís sá um framkvæmd könnunarinnar, sem náði til átta tegunda nautahakks, að fram kemur á vef Neytendasamtakanna.

Helstu niðurstöður könnunarinnar eru að þrátt fyrir fullyrðingar um annað reyndist ekkert sýnanna innihalda aðrar kjöttegundir en nautakjöt. Ekki fannst sojaprótein í neinum sýnanna, en því hefur verið haldið fram að kjötiðnaðarstöðvar drýgi nautahakk með sojapróteini. Í sex sýnum var viðbætt vatn og í einu tilvikanna kom það ekki fram á umbúðum. Gjarnan er í slíkum tilvikum bætt við kartöflutrefjum. Fram kemur í skýrslu Matís að endurskoða þurfi reglugerð um kjöt og kjötvörur og taka bæði samtökin undir það. Meðal annars er bent á að reglugerðin sé óljós varðandi viðbætt vatn.

Á vef Neytendasamtakanna kemur fram að það sé skoðun samtakanna og Landssambands kúabænda að ekki eigi að heimila að bæta öðrum efnum í nautahakk, án þess að slíkt komi skýrt fram í vöruheiti og innihaldslýsingu. Í of mörgum tilvikum voru merkingar á umbúðum ekki í samræmi við gildandi reglur. Þessu verða kjötiðnaðarstöðvar að kippa í liðinn tafarlaust, að mati Neytendasamtakanna. Þá kom fram í könnuninni að í tveimur tilvikum reyndist fituinnihald meira en gefið er upp á umbúðum. Slíkt er að sjálfsögðu óásættanlegt enda varðar það við lög, segir á vef Neytendasamtakanna.

Það er niðurstaða skýrslunnar að flestir þættir sem kannaðir voru varðandi nautahakk séu í lagi, þó eru nokkur atriði sem þarf að laga nú þegar. Neytendasamtökin segja að þessar niðurstöður leysi opinbera eftirlitsaðila ekki á nokkurn hátt frá þeirri skyldu sinni, að sjá til þess að ákvæði laga og reglna um matvæli, sem og aðrar neysluvörur sé framfylgt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×