Innlent

Mikill snjór í Danmörku

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Mikill snjóstormur gekk yfir Danmörku síðdegis í gær og í nótt og vakna því flestir Danir upp í miklu vetrarríki þennan morguninn. Tafir urðu á flugumferð á Kastrup flugvelli í gær og þurfti að aflýsa ferðum.

Önnur samgöngukerfi hafa einnig orðið fyrir truflunum og er búist við töfum fram eftir morgni. Veðurfræðingar búast við enn meiri snjókomu í Danaveldi í dag og spá menn því að Kaupmannahöfn og Norður-Sjáland fái stærsta skammtinn.

Danskir vegfarendur eru því hvattir til að fara varlega og gefa sér góðan tíma í að komast til og frá vinnu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×