Styttri biðlistar 12. mars 2010 09:46 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Staða á biðlistum á sjúkrahúsum og læknastofum er almennt góð og biðtími stuttur eftir allflestum skurðaðgerðum. Fækkað hefur umtalsvert á biðlista eftir aðgerðum á augasteini en biðlisti fyrir liðskiptaaðgerðir á hné hefur lengst. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins sem hefur birt nýjar tölur um biðlista á sjúkrahúsum og læknastofum eftir völdum skurðaðgerðum í febrúar 2010. Samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga er læknum skylt að veita sjúklingi upplýsingar um áætlaðan biðtíma eftir meðferð sem hann þarfnast og möguleika til að fá meðferðina fyrr annars staðar. Staða á biðlistum í febrúar er almennt góð en þó hefur biðlisti fyrir gerviliðaaðgerð á hné lengst. Nú hafa 247 einstaklingar beðið lengur en 3 mánuði eftir slíkri aðgerð en voru 174 á sama tíma í fyrra. Biðlisti eftir slíkum aðgerðum hefur lengst á öllum sjúkrahúsum nema Landspítala en mest á Heilbrigðisstofnuninni á Akranesi, að fram kemur á vef Landlæknisembættisins. Biðlisti eftir gerviliðskiptum á mjöðm hefur styst bæði á Landspítala og á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Langur biðlisti var fyrir hjartaþræðingar á Landspítala á árunum 2007 til 2008 en sá biðlisti er nú nær horfinn. Fjöldi einstaklinga á biðlista eftir aðgerðum á augasteini er mun minni nú en verið hefur og bíða 558 eftir slíkri aðgerð en voru 1224 á sama tíma í fyrra. Landlæknisembættið segir að muni mestu um fækkun á biðlistum á Landspítala og St. Jósefsspítala–Sólvangi. Áætlaður biðtími eftir slíkri aðgerð á Landspítala er nú um 19 vikur en var 43 vikur í fyrra á sama tíma. Síðustu tvö ár hefur verið viðvarandi biðlisti eftir slíkum aðgerðum og hafa rúmlega þúsund einstaklingar verið skráðir á þann biðlista að jafnaði. Heilbrigðisyfirvöld hafa gert ráðstafanir til að stytta þennan biðlista, meðal annars með því að gera tímabundna verksamninga við læknastofurnar Sjónlag og LaserSjón um aðgerðir á augasteinum. Aðgerðum á augasteinum fjölgaði því umtalsvert milli áranna 2007 og 2009. Styttri biðlisti nú er vegna fjölgunar aðgerða, en einnig er hugsanlegt að eftirspurn hafi minnkað eftir þeim þar sem greiðsluþátttaka sjúklinga í þess konar aðgerðum er umtalsverð, að mati Landlæknisembættisins. Biðlisti eftir brjóstaminnkunaraðgerðum hefur verið nokkuð langur en fer minnkandi, nú bíða 84 konur eftir slíkri aðgerð samanborið við 134 á sama tíma í fyrra. Vegna umræðu um biðlista eftir aðgerð til uppbyggingar á brjóstum eftir krabbameinsaðgerð skal tekið fram að þeim upplýsingum hefur ekki verið safnað fram að þessu, en þar sem þær aðgerðir eru nú mun algengari en áður var verða biðlistatölur birtar í næstu úttekt. Biðtími eftir öðrum aðgerðum er viðunandi og má nefna að enginn biðlisti er fyrir almennar skurðaðgerðir, svo sem gallsteina- og kviðslitsaðgerðir.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Sjá meira