Fyrsta skrefið í átt að fyrningu í sjávarútvegi 23. mars 2010 19:05
Útgerðarmenn óttast að skötuselslögin séu aðeins fyrsta skrefið í átt að svonefndri fyrningarleið í sjávarútvegi. Næst þegar þorskkvóti verði aukinn fari hann ekki til kvótaeigenda heldur til ríkisins. Skötuselskvóti verður aukinn um tvö þúsund tonn á næstu tveimur árum. Aukningunni verður ekki skipt hlutfallslega á milli kvótaeigenda heldur mun sjávarútvegráðherra úthluta veiðiheimildum gegn gjaldi. Útgerðamenn segja að með þessu sé búið að kollvarpa núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. „Þetta varðar grundvallaratriði hvernig fiskveiðistjórnun við ætlum að hafa hérna. Ætlum við að byggja á aflahlutdeild og aflamarkskerfi þar sem að þeir sem fjárfesta í greininni hafa öruggan veiðirétt eða ætlum við að fara svokallaða fyrningarleið og uppboð með tilheyrandi óvissu og óáran," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Þorskkvótinn hefur verið skertur um mörg þúsund tonn á síðustu árum með það fyrir augum að vernda og byggja upp stofninn. Útgerðarmenn óttast að þegar kvótinn verður aukinn á ný renni það beint til ríkisins. „Því hefur verið hótað að ef okkur tekst að byggja upp fiskistofnana sem við erum að gera núna með því að taka á okkur skerðingar þá verði farið með það með sama hætti og nú á að fara með skötuselinn. Það er auðvitað hlutur sem við getum ekki búið við," segir Friðrik.
Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Fleiri fréttir Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Sjá meira