Allt með kyrrum kjörum á gosstöðvunum 3. apríl 2010 16:50 Frá Morinsheiði. MYND/Egill Aðalsteinsson
Umferð í kringum gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi hefur verið með rólegra móti í dag, miðað við undanfarna daga, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu og björgunarsveitum í Rangárþingi, og hafa engin óhöpp komið upp. Straumur fólks og bíla inn í nærsveitir Eyjafjallajökuls hefur þó verið að aukast síðdegis, en jafnan sést best til gosstöðvanna í ljósaskiptum. Mjög gott veður er í Þórsmörk, og þokkalegt uppi á Fimmvörðuhálsi og sést því ágætlega til gossins úr Fljótshlíð. Hins vegar hefur verið skafrenningur á Mýrdalsjökli og þungt færi og aðeins fyrir mikið breytta bíla. Á Sólheimaheiði hefur þeim verið snúið við sem ekki eru á nægilega vel búnir. Vakt er einnig við gönguleiðina upp frá Skógum þar sem vanbúnir göngumenn eru stöðvaðir. Það kom þó ekki í veg fyrir að björgunarsveitir þurftu fyrr í dag að hjálpa tveimur illa búnum göngumönnum niður til byggða ofan af Fimmvörðuhálsi. Veðurstofan segir að krafturinn í gosinu sé sá sami. Gosóri sé óbreyttur en inn á milli komi hviður, sem stafi líklega af því að hraunið kemst enn í tæri við snjó en við það verða gufusprengingar. Fáeinir jarðskjálftar hafa orðið undir austurhluta Eyjafjallajökuls en allir innan við 2 að stærð. GPS-mælar á svæðinu sýna litlar breytingar á útþenslu fjallsins, sem bendir til að kvika streymi enn af fullum krafti til gíganna.
Mest lesið Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Sjá meira