Innlent

Össur fundaði aftur með Miliband

David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands.
David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í morgun fund með David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, í London. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Össur hafi farið yfir stöðuna í Icesave, samráð íslensku stjórnmálaflokkanna og hvaða möguleika íslensk stjórnvöld sæu til lausnar á Icesave deilunni.

Einnig ræddi hann stöðu efnahagsáætlunar Íslands og lagði áherslu á nauðsyn þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tæki áætlunina til meðferðar á réttum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×