Lífið

Vara eða samtal

Hannes Óli og Árni Pétur.
Mynd ÁA
Hannes Óli og Árni Pétur. Mynd ÁA

Á fimmtudaginn frumsýnir Áhugaleikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um áráttur, kenndir og kenjar. Verkið sem ber heitið MARS er 10 mínútna hugleiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá ÚTGERÐ, Hugmyndahúsi háskólanna, sem er nýtt gjörningarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af tólf verka röð sem mynda eina heild og verða sýnd í einu lagi í lok desember og verður þá eins konar annáll ársins 2010.

Listamönnum Áhugaleikhúss atvinnumanna hefur nýverið verið úthlutað listamannalaunum úr launasjóði sviðslistamanna vegna verkefna sinna en nú í vor mun leikhúsið endurflytja Ódauðlegt verk um stríð og frið. Verkið er nú í vinnslu hópsins en Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld hefur lagt leikhúsinu lið og er í þann mund að semja tónverk undir leiksýninguna sem verður sýnd í Hafnarfjarðarleikhúsinu í maí en fleiri ódauðleg verk eru í undirbúningi.

Í tilefni frumsýningar MARS sem verður í hádeginu kl. 12.30 fimmtudaginn 25. mars, mun Áhugaleikhús atvinnumanna sýna fyrsta ársfjórðunginn, JANÚAR, FEBRÚAR og MARS í samfellu það sama kvöld kl. 20 og aftur kl. 21. Leiksýningar Áhugaleikhúss atvinnumanna flokkast ekki undir markaðsvöru heldur samtal og er því ókeypis á alla viðburði leikhússins.

Örverk um áráttur, kenndir og kenjar eru öll eftir Steinunni Knútsdóttur í samvinnu við hópinn og unnin undir hennar stjórn.

Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir. Í JANÚAR leika þær Aðalbjörg Árnadóttir og Ólöf Ingólfsdóttir, í FEBRÚAR leika þeir Árni Pétur Guðjónsson og Hannes Óli Ágústsson, en í MARS Árni Pétur Guðjónsson, Kristjana Skúladóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Myndvinnsla og útsendingar er í höndum Hákonar Más Oddssonar og nema Borgarholtsskóla. - pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.