Mótmæla staðarvali fyrir Landsmót hestamanna 2012 29. janúar 2010 02:15 Frá gaddstaðaflötum árið 2008 Þegar Landsmót hestamanna var síðast haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu var slegið aðsóknarmet á mótið, en um 12 þúsund aðgöngumiðar eru sagðir hafa verið seldir inn á svæðið. Fréttablaðið/Vilhelm
Hafin hefur verið söfnun undirskrifta meðal hestamanna til að mótmæla ákvörðun um að Landsmót hestamanna 2012 skuli haldið í Reiðhöllinni í Víðidal í Reykjavík. Undanfarin ár hafa landsmót verið haldin til skiptis á Norður- og Suðurlandi, á Vindheimamelum í Skagafirði og á Gaddstaðaflötum við Hellu. „Við undirrituð lýsum furðu okkar á staðarvali fyrir Landsmót hestamanna 2012. Í okkar huga er Landsmót hestamanna fjölskylduhátíð sem nýtur sín best í dreifbýli,“ segir meðal annars í yfirskrift undirskriftasöfnunarinnar. Forsvarsmenn hestamannafélaga á Suðurlandi hittust á mánudagskvöld til að ræða stöðuna sem upp er komin og eru að ganga frá sameiginlegri ályktun þar sem staðarvalinu er mótmælt. Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda, sem jafnframt er formaður Rangárhallarinnar ehf., rekstraraðila Gaddstaðaflata, segir almenna óánægju með ákvörðun stjórnar Landssambands hestamanna um að halda næsta Landsmót í Reykjavík. „Og víðar en á Suðurlandi einu, þótt ef til vill sé skiljanleg óánægja þeirra sem að svæðinu hér standa,“ bætir hann við. „Enda verið að færa þetta úr fari sem fólk hefur verið ánægt með.“ Kristinn segir að fyrir síðasta Landsmót á Hellu hafi verið ráðist í miklar endurbætur á mótssvæðinu sem miðað hafi við að þar yrðu haldin mót næstu árin og rekstrarfélag svæðisins hafi lagt í töluverðar skuldir vegna þessa. „Um leið þykir okkur skjóta skökku við að til séu á þessum tímum svo miklir peningar í Reykjavík að byggja eigi upp svæðið í Víðidal,“ segir hann og telur nokkuð ljóst að Reykjavíkurborg muni þurfa að hlaupa undir bagga við endurbætur þar, miðað við þær kröfur sem gerðar hafi verið til mótssvæðisins við Hellu. Með þær kröfur í huga telur Kristinn að kostnaður við endurbætur í Víðidal verði vart undir 100 milljónum króna. „Sem kann nú að standa í einhverjum á sama tíma og skorið er niður í skólum og leikskólum.“ Kristinn segir ágætislandsmót hafa verið haldið í Reykjavík árið 2000, þótt ekki hafi orðið til sú stemning sem margir vilji tengja við mótið. Þá hafi verið ólíku saman að jafna mætingu þá, sem numið hafi sölu upp á 6.300 miða, þegar fjölmennast var og sölu upp á um 12.000 aðgöngumiða á Gaddstaðaflötum 2008, en þá hafi verið metaðsókn. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Sjá meira