Laun lækna lækkuð Sigríður Mogensen skrifar 14. júní 2010 18:40
Laun lækna hafa lækkað minna frá bankahruni en laun hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra og sjúkraliða, þvert á markmið um kjarajöfnun í niðurskurðinum. Heilbrigðisráðherra hyggst beita sér fyrir því að laun lækna skerðist meira en laun annarra hópa í stéttinni. Samkvæmt nýjum tölum hafa meðallaun lækna lækkað um 6,9% frá fjórða ársfjórðungi 2008 til fyrsta ársfjórðungs 2010. Á sama tímabili hafa meðallaun hjúkrunarfræðinga lækkað um 9,7% og ljósmæðra um 8,4%. Meðallaun sjúkraliða hafa lækkað mest eða um 10,3%. Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segir að tölurnar sýni að markmið um kjarajöfnun í stéttinni hafi ekki náðst. Það er ljóst að það hefur ekki náðst sá árangur í kjarajöfnun sem að var stefnt í þessum niðurskurði, þannig að greinilega hefur orðið langmest launalækkun hjá þeim sem hafa lægstu launin," segir hún. Álfheiður segir að lækkunin á launum lækna sé mest á sjúkrahúsunum, minni í heilsugæslu en langminnst á heilbrigðisstofnunum um landið. Meðallaun lækna þar nema nú 1,4 milljónum króna. „En það er auðvitað ljóst að það eru allmargir sem eru yfir þeim meðallaunum líka, þetta er til skoðunar og til þess að verja störfin í landinu þurfum við að lækka hæstu laun," segir Álfheiður. Aðspurð hvernig hún ætli að ná því fram svarar Álfheiður: „Það er verið að gera það með eftirfylgni - það er búið að gera öllum grein fyrir þessari stefnu og leiðarljósum."
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira