Reykjavíkurborg þarf að binda 12 milljarða 10. júlí 2010 06:00 Frá Reykjavík
Reykjavíkurborg þarf að leggja 10 til 12 milljarða króna til hliðar til að sýna fram á fjárhagslegan styrk sinn sem bakhjarl Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Borgin hefur sett á laggir áhættustýringarhóp og ákveðið að vinna markvisst að því að auka trúverðugleika borgarinnar sem ábyrgðaraðila á lánamörkuðum. „Í stuttu máli er Reykjavíkurborg komin af afneitunarstiginu," segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. „Menn hafa verið að ýta á undan sér býsna miklum skafli í málefnum Orkuveitunnar. Við teljum ástæðu til að taka þessi mál föstum tökum," „Áhætta A-hluta borgarsjóðs vegna Orkuveitu Reykjavíkur felst einkum í mögulegri lausafjáráhættu sem gæti birst í því að lánveitandi OR krefur A-hluta borgarsjóðs um að efna greiðsluskuldbindingu sem OR getur ekki efnt," segir í greinargerð fjármálastjóra borgarinnar með þeim tillögum sem samþykktar voru á borgarráðsfundi í gær. „Forsendur þess að unnt verði að ná árangursríkri endur-fjármögnun OR og fjármögnun nýframkvæmda eru annars vegar að lánamarkaður hafi trú á greiðsluhæfi og áætlunum Orkuveitu Reykjavíkur og hins vegar að lánamarkaður hafi trú á bakábyrgðaraðila OR, A-hluta borgar-sjóðs." Sú aðgerð að halda sterkri lausafjárstöðu með því að tíu til tólf milljarðar króna verði lagðir til hliðar muni hafa áhrif á aðgengi og lánskjör við samningsgerð um endurfjármögnun skulda Orkuveitu Reykjavíkur. OR mun þurfa að endurfjármagna að minnsta kosti 33 milljarða króna skuldir í ár og næstu þrjú ár og er þá ekkert litið til lántöku vegna nýrra fjárfestinga. Í minnisblaði fjármálastjóra kemur einnig fram að hagræðing í rekstri Orkuveitunnar muni litlum árangri skila til þess að auka möguleika fyrirtækisins á að greiða af skuldum sínum þar sem breytilegur rekstrarkostnaður er tiltölulega lítill. Hækkun gjaldskráa sé skilvirkasta leiðin til þess að tryggja að fyrirtækið geti greitt af skuldum sínum. Fjármálastjóri borgarinnar hefur lagt til að áætlun um þróun gjaldskráa næstu ára verði hraðað. Um 20 prósenta hækkun gjaldskrár mundi þó aðeins duga til þess að standa undir afborgunum og vaxtagreiðslum þetta ár og frekari hækkanir yrðu þá nauðsynlegar vegna skulda næsta árs. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira