Innlent

Tólf þingmenn vilja kjósa um kvótann

Ögmundur Jónasson.
Ögmundur Jónasson.

Tólf stjórnarþingmenn hafa lagt fram þingsályktunartilllögu á Alþingi um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan íslenskar fiskveiðistjórnar. Meðal flutningsmanna eru Ólína Þorvarðardóttir, Atli Gíslason og Ögmundur Jónasson.

Fram kemur í greinargerð með tillögunni að flutningsmenn telji ólíklegt að hægt verði að ná fram breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu í samkomulagi við hagsmunaaðila. Því er lagt til að málinu verði vísað til þjóðarinnar.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur áður lýst því yfir að hún telji heppilegt að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×