Engin samstaða náðist á fundinum - þjóðstjórn ekki tímabær 5. október 2010 19:11
Engin samstaða náðist á fyrsta fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um aðgerðir handa skuldsettum heimilum. Forsætisráðherra segir að finna verði lausn á vandanum sem fyrst en telur ekki tímabært að mynda þjóðstjórn. Það voru beyglaðir og rispaðir ráðherrabílar sem stóðu fyrir framan stjórnarráðshúsið í morgun þegar ríkisstjórnin kom þar saman til fundar. Eftir ríkisstjórnarfundinn sögðu forystumenn ríkisstjórnarinnar taka mótmælin til sín og að við þeim verði brugðist. Kallað verður eftir samráði við hagsmunaaðila og stjórnarandstöðu til að finna lausn á skuldavanda heimilanna og það mál sett í forgang. „En ég held að þetta verði að ske fljótt, það er reiði í samfélaginu og mikil óánægja eins og skýrt kom fram á Austurvelli og við verðum að taka þessi skilaboð til okkar, ekki bara við við ríkisstjórnarborðið heldur stjórnmálamenn í heild sinni. Ég er ekki viss um að þjóðstjórn leysi þarna vandann. Við viljum taka þetta fólk að borðinu og sjá hvort við getum unnið saman," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Byggja þurfi upp félagslegt íbúðakerfi og fresta nauðungaruppboðum. „Það er mjög mikilvægt að allir sem eru með sín mál í vinnslu núna, í kerfinu hjá bönkunum hjá umboðsmanni að þeir fái frest á því að þeirra mál fari í uppboð. Þeirra íbúðir fari í uppboð þangað til fyrirséð er hvaða lausnir er hægt að boða í þeim málum," sagði Jóhanna. Stjórnarflokkarnir hittu svo forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna klukkan fjögur í dag. „Það voru kynntar þarna hugmyndir samráðstillagna sem við vorum með síðasta vor um að allir kæmu saman að skoða tillögur um ástandið, og ekkert nema gott um það að segja. Við höfum allan tímann sagt að við værum tilbúnir að styðja öll góð mál, en það sem vantaði var konkret tillögur um að menn væru tilbúnir að breyta um stefnu," sagði Sigmundur Davíð að loknum fundi. Ólöf Nordal var spurð að því hvort að sjálfstæðismenn væru tilbúnir í samstarf. „Við höfum alltaf verið reiðubúnir til þess hér á þinginu að greiða úr málefnum heimilanna. Við höfum stutt þau mál sem hafa verið til framfara og við höfum staðið fyrir þverpólitísku samkomulagi hér á þinginu til að leysa úr þeim vanda eins og hægt hefur verið. Það er hins vegar brýnt að ríkisstjórnin sýni forystu hér í landinu og hana skortir það. Það koma ekkert fram á þessum fundi sem breytir þeirri skoðun minni," sagði Ólöf. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði að fundurinn hefði verið árangurslaus. „Eftir þennan fund þá liggur ljóst fyrir að þau eru ekki tilbúin að fara út í þær afgerandi róttæku aðgerðir sem þarf til þess að hjálpa skuldugum heimilum. Við lögðum fram þann lista sem við teljum að þurfi að gera, og það fékk ekki undirtektir og var ekki inni í þeim tillögum sem þau voru búin að leggja fram, þannig að nema þau komi með ný spil að borðinu þá var þessi fundur árangurslaus," sagði Þór.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Fleiri fréttir Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Sjá meira