Ísraelar klúðruðu árásinni á tyrkneska skipið Óli Tynes skrifar 12. júlí 2010 14:57 Ísraelskur hermaður liggur særður á þilfari tyrkneska skipsins. Yfir honum stendur maður með hníf. Myndin birtist í tyrkneska blaðinu Hurryet. Mynd/Tyrkneskt dagblað
Ísraelar klúðruðu gersamlega hertöku tyrkneska skipsins Mavi Marmara þegar þeir stöðvuðu hjálparskipalestina til Gaza strandarinnar í maí síðastliðnum. Þetta er niðurstaða ísraelskrar rannsóknarnefndar sem Giora Eiland fyrrverandi hershöfðingi fór fyrir. Hluta skýrslunnar hefur verið lekið til fjölmiðla. Þar kemur meðal annars fram að dagana fyrir áhlaupið héldu ísraelskir embættismenn því fram að ofbeldismenn með tengsl við hryðjuverkasamtök væru um borð í Mavi Marmara. Engu að síður var hermönnunum sem fóru þar um borð sagt búast aðeins við lítilli mótspyrnu. Þeir voru vopnaðir litboltabyssum, en báru einnig skammbyssur í síðrum. Myndbandsupptökur sýna að einhverjir um borð í tyrkneska skipinu réðust á ísraelsku hermennina jafnvel áður en þeir slepptu línunum sem þeir sigu í úr þyrlum sem sveimuðu yfir skipinu. Í skýrslunni segir að þessir menn hafi verið vopnaðir bareflum og hnífum. Þeir hafi borið ísraelsku hermennina ofurliði þartil þeir gripu til skotvopna sinna. Skýrsluhöfundar telja beitingu skotvopnanna réttlætanlega. Níu manns voru skotnir til bana. Sjónarvottar um borð í tyrkneska skipinu hafa hinsvegar haldið því fram að ísraelar hafi byrjað strax að skjóta. Ólíklegt er að tyrkir sætti sig við þessa skýrslu en þeir hafa krafist opinberrar rannsóknar á atburðinum. Samkvæmt nýjustu fréttum gæti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir veitt slíkri nefnd forstöðu.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Sjá meira