Tugir manna myrtir sunnan landamæra gudsteinn@frettabladid.is skrifar 27. ágúst 2010 03:15 Vopnabúr glæpamannanna Eftir skotbardagann á búgarðinum lagði herinn hald á fjöldann allan af vopnum. Fréttablaðið/AP
Lík 72 manna fundust á búgarði í Tamaulipas-héraði í Mexíkó, rétt sunnan landamæra Bandaríkjanna á þriðjudaginn. Fullvíst þykir að hinir látnu hafi verið innflytjendur frá Mið- og Suður-Ameríkuríkjum, sem hafi ætlað sér að komast norður yfir. Mexíkóskur eiturlyfjahringur er grunaður um að hafa myrt fólkið. Einn maður frá Ekvador lifði af hildarleikinn og gat komist við illan leik að landamærastöð á þjóðveginum og látið þar vita um atburðina. Hermenn héldu þegar á staðinn og fundu þar í húsi hóp vopnaðra manna úr eiturlyfjahringnum. Til bardaga kom og féll einn hermaður og þrír úr gengi morðingjanna. Í rými þar á bak við fundust lík 58 karlmanna og fjórtán kvenna. Teresa Delagadillo, starfskona á heimili fyrir flóttamenn í landamærabænum Matamaros, Mexíkómegin landamæranna, segist oft hafa heyrt sögur um að glæpagengi hafi rænt fólki og misþyrmt því til þess að fá út úr því fé. Aldrei hafi hún þó heyrt af neinu jafn hryllilegu og þessum fjöldamorðum nú í vikunni. Atburðurinn vekur athygli á erfiðu hlutskipti fólks sem reynir að komast yfir landamærin til Bandaríkjanna frá ríkjum Suður- og Mið-Ameríku. Æ fleiri fréttir hafa borist af því að hópum þeirra hafi verið rænt. Fólkið sé síðan þvingað til þess að gefa upp símanúmer hjá ættingjum sínum, annaðhvort í Bandaríkjunum eða í heimalandinu. Ættingjarnir eru síðan krafðir um peninga í skiptum fyrir fólkið, sem haldið er föngnu þangað til peningar berast. Í skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International frá í apríl segir að ferðaleið þessara innflytjenda í gegnum Mexíkó til Bandaríkjanna sé ein sú hættulegasta í heimi. Mexíkóstjórn hefur staðfest í það minnsta sjö dæmi um hópmannrán af þessu tagi það sem af er þessu ári. Í öllum tilvikum voru það glæpahringir sem stóðu að mannránunum. Mannréttindastofnunin í Mexíkó segist hafa upplýsingar um að í hverjum einasta mánuði sé 1.600 manns rænt með þessum hætti, og eru þessar tölur byggðar á frásögnum sem stofnuninni bárust á tímabilinu september 2008 til febrúar 2009.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fleiri fréttir Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Sjá meira