Innlent

Ályktun BHM kemur mjög á óvart

Handsalað Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (til vinstri), og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, handsöluðu nýverið kaup Framtakssjóðsins á Vestia. Fréttablaðið/GVA
Handsalað Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (til vinstri), og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, handsöluðu nýverið kaup Framtakssjóðsins á Vestia. Fréttablaðið/GVA

Miðstjórn Bandalags háskólamanna (BHM) kallar eftir því í ályktun að Framtakssjóður Íslands sýni fram á með óyggjandi hætti að fjárfestingar sjóðsins fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins og leggst gegn frekari framlögum í sjóðinn.

„Við erum að hvetja til þess að hlutirnir séu gegnsæir,“ segir Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM. Hún segir að upp hafi komið efasemdir um ákvæði sjóðsins um hlutfall einstakra fjárfestinga af heildarfjárfestingum.

Gagnrýnt hefur verið að sjóðurinn hafi samið um kaup á Vestia af Landsbankanum fyrir 19,5 milljarða þegar sjóðurinn mun hafa um 30 milljarða til að fjárfesta næstu þrjú árin.

„Við viljum að þetta sé alveg skýrt og ekki þurfi að vakna spurningar um það, þegar verið er að sýsla með fjármuni úr sjóðum launamanna,“ segir Guðlaug. „Við viljum að það sé sýnt með óyggjandi hætti fram á að fjárfestingarnar fylgi þessum tilgangi og skilmálum.“

Í ályktun miðstjórnar BHM er lagst alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna til Framtakssjóðsins. Guðlaug segir að með þessu sé ekki verið að leggja til að framlög verði dregin til baka. Hún segir að BHM hafi lagst gegn stofnun Framtakssjóðsins, og með þessu sé sú andstaða ítrekuð.

„Þessi ályktun kemur mjög á óvart, við höfum ekki fengið neina fyrirspurn frá BHM,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Hann segir erfitt að átta sig á því hvað miðstjórnin eigi við þegar talað sé um að gegnsæi þurfi að vera hjá sjóðnum, enda sé þar nú þegar algert gegnsæi í fjárfestingum.

Finnbogi segir stjórn Framtakssjóðsins taka ákvarðanir í samræmi við skilmála sjóðsins. Fyrirtæki séu ekki keypt nema stjórn sjóðsins telji þau lífvænleg og góða fjárfestingu.

Finnbogi segir sjóðinn hafa lagt út 1,5 milljarða í fjárfestinguna í Vestia, um fimm prósent af þeim 30 milljörðum sem sjóðurinn fær frá lífeyrissjóðunum á þremur árum. Hann segir að átján milljarðar króna til viðbótar séu greiddir með hlutabréfum í sjóðnum.

Finnbogi segir skýrt að sjóðirnir geti ekki hætt við þessi fjárframlög hvað svo sem miðstjórn BHM álykti. Stjórnin hafi í raun ekki aðkomu að sjóðnum öðruvísi en í gegnum stjórnarmenn í lífeyrissjóðum sinna félagsmanna.

Finnbogi segir BHM ekki hafa óskað eftir neinum upplýsingum frá sjóðnum, og því sé einkennilegt að fara fram á með þessum hætti að sjóðurinn sýni fram á að skilmálar sjóðsins séu ekki brotnir.

Framtakssjóður Íslands var stofnaður af sextán lífeyrissjóðum í desember 2009. Sjóðurinn á að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum sem eiga sér vænlegan rekstrar­grundvöll.

brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×