Ályktun BHM kemur mjög á óvart 1. september 2010 05:00 Handsalað Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands (til vinstri), og Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, handsöluðu nýverið kaup Framtakssjóðsins á Vestia. Fréttablaðið/GVA
Miðstjórn Bandalags háskólamanna (BHM) kallar eftir því í ályktun að Framtakssjóður Íslands sýni fram á með óyggjandi hætti að fjárfestingar sjóðsins fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins og leggst gegn frekari framlögum í sjóðinn. „Við erum að hvetja til þess að hlutirnir séu gegnsæir,“ segir Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM. Hún segir að upp hafi komið efasemdir um ákvæði sjóðsins um hlutfall einstakra fjárfestinga af heildarfjárfestingum. Gagnrýnt hefur verið að sjóðurinn hafi samið um kaup á Vestia af Landsbankanum fyrir 19,5 milljarða þegar sjóðurinn mun hafa um 30 milljarða til að fjárfesta næstu þrjú árin. „Við viljum að þetta sé alveg skýrt og ekki þurfi að vakna spurningar um það, þegar verið er að sýsla með fjármuni úr sjóðum launamanna,“ segir Guðlaug. „Við viljum að það sé sýnt með óyggjandi hætti fram á að fjárfestingarnar fylgi þessum tilgangi og skilmálum.“ Í ályktun miðstjórnar BHM er lagst alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna til Framtakssjóðsins. Guðlaug segir að með þessu sé ekki verið að leggja til að framlög verði dregin til baka. Hún segir að BHM hafi lagst gegn stofnun Framtakssjóðsins, og með þessu sé sú andstaða ítrekuð. „Þessi ályktun kemur mjög á óvart, við höfum ekki fengið neina fyrirspurn frá BHM,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Hann segir erfitt að átta sig á því hvað miðstjórnin eigi við þegar talað sé um að gegnsæi þurfi að vera hjá sjóðnum, enda sé þar nú þegar algert gegnsæi í fjárfestingum. Finnbogi segir stjórn Framtakssjóðsins taka ákvarðanir í samræmi við skilmála sjóðsins. Fyrirtæki séu ekki keypt nema stjórn sjóðsins telji þau lífvænleg og góða fjárfestingu. Finnbogi segir sjóðinn hafa lagt út 1,5 milljarða í fjárfestinguna í Vestia, um fimm prósent af þeim 30 milljörðum sem sjóðurinn fær frá lífeyrissjóðunum á þremur árum. Hann segir að átján milljarðar króna til viðbótar séu greiddir með hlutabréfum í sjóðnum. Finnbogi segir skýrt að sjóðirnir geti ekki hætt við þessi fjárframlög hvað svo sem miðstjórn BHM álykti. Stjórnin hafi í raun ekki aðkomu að sjóðnum öðruvísi en í gegnum stjórnarmenn í lífeyrissjóðum sinna félagsmanna. Finnbogi segir BHM ekki hafa óskað eftir neinum upplýsingum frá sjóðnum, og því sé einkennilegt að fara fram á með þessum hætti að sjóðurinn sýni fram á að skilmálar sjóðsins séu ekki brotnir. Framtakssjóður Íslands var stofnaður af sextán lífeyrissjóðum í desember 2009. Sjóðurinn á að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum sem eiga sér vænlegan rekstrargrundvöll. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira