Innlent

Stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust nokkrir tugir kannabisplantna á ýmsum stigum ræktunar auk lítilræðis af öðrum fíkniefnum.

Á sama stað var einnig lagt hald á kylfu og nokkra hnífa. Þá tók lögreglan í sína vörslu ýmsan búnað sem tengdist kannabisræktuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×