Fjör á „Aldrei fór ég suður“ 4. apríl 2010 19:18
Gestum á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði fjölgaði nokkuð í gær og alls voru rúmlega tvö þúsund gestir mættir. En það voru ekki aðeins tónlistaráhugamenn á Ísafirði því gestir Skíðavikunnar nutu veðurblíðunnar á Ísafirði. Fjölmargir skíðaunnendur lögðu leið sína til Ísafjarðar nú um páskana til að sækja Skíðavikuna, en þetta er í sjötugasta og sjötta sinn sem hún er haldin og voru gestir þokkalega heppnir með veður að þessu sinni, en vikunni lýkur á morgun. Gestum á rokkhátíð alþýðunnar Aldrei fór ég suður fjölgaði nokkuð í gær á lokakvöldi hátíðarinnar og voru rúmlega tvö þúsund gestir mættir til Ísafjarðar til að fylgjast með tónleikahaldinu. Á meðal þeirra sem stigu á stokk í gær voru Einar Kárason rithöfundur sem tók lagið og var með gógó-dansara sér til halds og trausts. Þá var Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri mættur til Ísafjarðar með Elvis-taktana í farteskinu. Sólin frá Sandgerði, sem áhangendur Nætur- og Dagvaktarinnar ættu að þekkja, tróð einnig upp en Halldór Gylfason skemmti lýðnum í gervi Kidda Casio og hafði Helga Björns sér til fulltingis. Tónlistarfólkið í Hjaltalín glöddu smekkvísa og hljómsveitin Dikta, sem var valin vinsælasti flytjandinn á Íslensku tónlistarverðlaununum, var eitt af aðal númerum gærkvöldsins. Og eins og þessar myndir bera með sér þá ætlaði þakið að rifna af húsnæði KNH verktaka, sem hýsti hátíðina, þegar Haukur Heiðar og félagar tóku eitt vinsælasta lag sitt, Thank you...
Mest lesið Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Erlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Veður Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fleiri fréttir „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Sjá meira