Innlent

„Ég er ekkert reiður út í þann sem skvetti á mig“

Bíllinn hans Smára leit illa út eftir atburðinn en lítur aðeins betur í dag, að hans sögn.
Bíllinn hans Smára leit illa út eftir atburðinn en lítur aðeins betur í dag, að hans sögn.
„Mér fannst það nú fullseint í rassinn gripið að óska eftir vitnum svona viku seinna," segir Smári Örn Árnason bílstjóri sem var einn af þeim sem keyrði yfir málningu á Suðurlandsvegi 24. júní síðastliðinn.

Það var skömmu fyrir hádegið sem málningarfata féll af ökutæki og á veginn. Það slettist úr henni á nokkra bíla sem á eftir komu og veginum í kjölfarið lokað um stund á meðan hreinsunarstarf stóð yfir. Lögreglan óskaði svo eftir vitnum af atburðinum í gær.

Neitaði að taka skýrslu

Smári segist hafa beðið eftir lögreglunni í þrjá klukkutíma við Litlu-Kaffistofuna. „Svo ákváðum við að keyra niður á vettvang og tala við lögregluna. Hún neitaði að taka skýrslu af þessu því myndirnar segðu það sem segja þarf." Hann keyrði í kjölfarið til Reykjavíkur þar sem tryggingarfélag skoðaði bílinn. „Þar fékk ég þau svör að ef gerandinn finnst ekki, verð ég að bera ábyrgð á þessu sjálfur."

Kryddar bara tilveruna

Smári náði mikið af málningunni af bílnum sjálfur. „Maður hefur ekki náð öllu, svona í kringum 90 prósent. Það er mjög erfitt að ná þessu af gúmmíköntunum, dekkjunum, undirvagninum, og listunum við gluggann. Það er ekkert hægt að ná því af nema að fara með bílinn í einhverja þjónustu og það kostar umtalsverða peninga." Smári lítur þó björtum augum fram á veginn. „Þetta kryddar bara tilveruna," segir hann sem þakkar fyrir að ekki fór verr.

Sækir bætur á gerandann

Hann segir það leiðinlegt að sjá bílinn sinn, sem hefur orðið fyrir tjóni. „Ég er ekkert reiður út í þann sem skvetti á mig eða þannig. Ef gerandinn finnst sæki ég bætur á hann sem eðlilegt er, ef að lögreglan grefur þetta upp," segir Smári sem vonar að lögreglan finni sökudólginn. „Ég vona það, bæði mín vegna og annarra sem áttu bíla sem lentu í þessu. "






Tengdar fréttir

Málning skemmir bíla á Suðurlandsvegi

„Við erum hérna þrír ökumenn og erum alveg gáttaðir," segir Smári Örn Árnason sem var að keyra Suðurlandsveginn í átt að að Selfossi þegar hann keyrir í málningu sem slettist á veginn úr fötu rétt áður komið er að Litlu-Kaffistofunni. Smári Örn segir að bíllinn hans sé óökufær og sé búinn að bíða eftir lögreglunni í tvo klukkutíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×