Innlent

Jónas sigraði í Mosó - Valdimar Leó lenti í öðru sæti

Jónas Sigurðsson.
Jónas Sigurðsson. Mynd/GVA
Jónas Sigurðsson, núverandi oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, sigraði í prófkjöri flokksins í dag. Valdimar Leó Friðriksson, fyrrverandi þingmaður, sem sóttist eftir fyrsta sætinu hafnaði í örðu sæti.

Samfylkingin hlaut tvo bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum árið 2006. Jónas og Hönnu Bjartmars Arnardóttur. Hún hafði í þriðja sæti í dag.

232 félagsmenn í Samfylkingunni greiddu atkvæði og varð röð efstu manna þessi.

1. Jónas Sigurðsson

2. Valdimar Leó Friðriksson

3. Hanna Bjartmars Arnardóttir

4. Anna Sigríður Guðnadóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×