Bíða yfirmats um áhrif skítalyktar 7. júlí 2010 03:00 Laufey Jóhannsdóttir „
Við höldum því til haga að við eigum ekki að bæta þennan skaða," segir Laufey Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, um afstöðu sveitarfélagsins til skaðabótakröfu eigenda jarðarinnar Melaleitis vegna reksturs svínabús Stjörnugríss á næstu jörð. Eigendur Melaleitis telja að með því að sveitarfélagið veitti Stjörnugrísi byggingarleyfi fyrir svínabúi árið 1999 hafi það orðið til þess að rýra verðmæti Melaleitis vegna ólyktar og fleiri atriða. Upphafleg krafa hljóðaði samtals upp á sextíu milljónir króna en sú upphæð mun hafa lækkað nokkuð eftir að niðurstaða dómkvadds matsmanns lá fyrir. Hvalfjarðar-sveit unir ekki því mati. „Það var álit okkar lögmanns að matið ætti að vera hlutlaust svo við settum það í yfirmat," segir Laufey og útskýrir að verkefnið sé að meta hvort skaði hafi orðið á jörðinni Melaleiti miðað við þá starfsemi sem þar hafi verið árið 1999. Enn sé mögulegt að ná sáttum í málinu án atbeina dómstóla. Eigendur Melaleitis hafa sagt að það hafi eingöngu verið eigendur jarðarinnar undir svínabúinu og sveitarfélagið sjálft sem hagnast hafi á breyttu deiliskipulagi sem gerði kleift að reka búið á þessum stað. Laufey segir hagsmuni sveitar-félagsins af svínabúinu fyrst og fremst felast í fasteignagjöldum eins og af hverju öðru húsi yfir atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu. „Það eru ekki margir sem starfa þarna," bendir sveitarstjórinn á.- gar
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira