Innlent

Greiðslur til mjólkur- og sauðfjárbænda hækka

Greiðslur til mjólkur- og sauðfjárbænda hækka um rúmar 300 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fjárlögum. Á sama tíma er heilbrigðisstofnun Suðurlands gert að skera niður um 400 milljónir en forstjóri stofnunarinnar segir að þetta muni færa þjónustuna áratugi aftur í tímann.

Útgjöld ríkisins verða skorin niður um 32 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Á heimasíðu Datamarket má sjá hvernig niðurskurðinum er skipt á milli ráðuneyta. Iðnaðarráðuneytinu er gert að skera hlutfallslega mest niður eða um tæplega 19 prósent og þar næst kemur samgönguráðuneytið með 15 prósent. Heilbrigðisráðuneytið þarf að skera niður um 4,8 prósent en útgjöld efnhags- og viðskiptaráðuneytisins aukast hins vegar um 5 prósent.

Landbúnaðar og sjávarútvegráðuneytið þarf að skera niður um 1,4 prósent næst minnst allra ráðuneyta. Munar þar mestu um lækkun á framlögum til Bændasamtakanna en greiðslur til mjólkur- og sauðfjárbænda hækka hins vegar um rúmar 300 milljónir.

Farið áratugi aftur í tímann

Til setja þessa upphæð í ákveðið samhengi þá þarf heilbrigðistofnun Suðurlands að skera niður um 400 milljónir á næsta ári. Boðað var til starfsmannafundar í dag vegna málsins en forstjóri stofnunarinnar segir skerða þurfi þjónustuna verulega til að mæta þessum niðurskurði.

„Við munum gera allt hvað við getum til aðforða að þetta fari í þennan farveg. Þetta er náttúrulega verið að hverfa áratugi aftur í tímann með þessu," segir Magnús Skúlason, forstjóri heilbrigðisstofnunnar Suðurlands.

Ekki náðist í Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra í dag vegna málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×