Fréttaskýring: Áminningar um skil sendar þrisvar á ári 11. júní 2010 05:15 Á annað þúsund fyrirtækja eru í vanskilum með ársreikninga. Sum þeirra eru nokkuð umsvifamikil. Fyrirtæki mega búast við sektum ef þau bregðast ekki við áminningum um skil. Mynd/GVA
Algengt er að fyrirtæki skili ekki ársreikningum til Ársreikningaskrár. Helsta ástæðan er gleymska og trassaskapur, samkvæmt upplýsingum frá skránni. Mörg dæmi eru um að félög, sem jafnvel hafa töluverð umsvif, hafi ekki skilað reikningum svo árum skipti. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hefur félagið Akurey, sem á 61 prósent í lyfjafyrirtækinu Icepharma í gegnum annað félag, aldrei skilað ársreikningi frá stofnun árið 2007. Stjórnarformaður þess og prókúruhafi, Kristján Jóhannsson, er lektor í viðskiptafræði og situr jafnframt í stjórn Arion banka sem fulltrúi Bankasýslu ríkisins. Kristján sagðist koma af fjöllum þegar Fréttablaðið ræddi við hann. Hann hefði einfaldlega ekki vitað af vanskilunum. Samkvæmt upplýsingum frá Ársreikningaskrá hafa öllum þeim sem hafa vanrækt að skila ársreikningum verið sendar þrjár áminningar vegna þess fyrir árið 2007 og tvær fyrir árið 2008. Kristján ætti því að hafa fengið sendar samtals fimm áminningar um að skila reikningum fyrir árin 2007 og 2008. Ársreikningum ber að skila í síðasta lagi í lok ágúst að loknu reikningsári. Skömmu eftir að sá frestur líður sendir Ársreikningaskrá áminningu, ítrekar hana í tvígang og sendir að lokum sektarboðun. Sé reikningi þá ekki skilað innan mánaðar leggst 250 þúsund króna sekt á félagið, og tvöföld sú upphæð fyrir ítrekuð vanskil. Þessari sektarheimild var bætt í lög um ársreikninga árið 2006. Öðru máli gegnir um félög sem uppfylla tvö af þremur lögbundnum stærðarskilyrðum tvö ár í röð; eigi 230 milljóna eignir, hafi 460 milljóna rekstrartekjur eða fjöldi ársverka sé 50. Vanskilum fyrirtækja sem uppfylla þau skilyrði er vísað til skattrannsóknarstjóra til frekari skoðunar. Ólíklegt verður þó að teljast að eignarhaldsfélagið Akurey uppfylli nema eitt þessara skilyrða. Ef félag trassar að skila reikningum þrjú ár í röð kannar Ársreikningaskrá hvort það sýni einhver merki þess að það sé enn starfandi. Ef svo er ekki er félagið tekið af skrá í samræmi við 83. grein laga um einkahlutafélög og er þá rekið á ábyrgð eigandans. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri lýsti þeirri skoðun sinni síðasta haust í viðtali við Fréttablaðið að réttast væri að hann hefði heimild til að afskrá félög á grundvelli vanskilanna einna og hefði látið fjármálaráðuneytið vita af því. Úr því hefur ekki verið bætt.
Mest lesið Sæðisgjafamálið: „Við fjölskyldan vöknuðum upp við vondan draum“ Innlent Gerðu engin mistök með nafngreiningu vændiskaupanda Innlent Gagnrýnir að auglýsingaskilti sé sett framar umferðaröryggi barna í forgangsröðinni Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Erlent Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Erlent Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Innlent Helmingur ríkisstofnana hafi stytt opnunartíma Innlent Varar Íslendinga við værukærð eftir að „Pólverjar lögleiddu pyntingar“ Innlent Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Veður Landsmenn sáttir: „Þetta eru bara glæpahundar“ Innlent Fleiri fréttir Mál Brákarborgar hefur kostað borgina yfir þrjá milljarða „Stóra-Hraun mun rísa“ Varaborgarfulltrúinn vill þriðja sæti Sundmenning Íslands á lista UNESCO Helmingur ríkisstofnana hafi stytt opnunartíma Sæðisgjafamálið: „Við fjölskyldan vöknuðum upp við vondan draum“ Gerðu engin mistök með nafngreiningu vændiskaupanda Gagnrýnir að auglýsingaskilti sé sett framar umferðaröryggi barna í forgangsröðinni „Þá sýndu stjórnvöld kjark“ Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Útvarp Sólheimar er vinsæl útvarpsstöð Landsmenn sáttir: „Þetta eru bara glæpahundar“ Varar Íslendinga við værukærð eftir að „Pólverjar lögleiddu pyntingar“ Breiðholtsbrautin opin á ný Áfram gert ráð fyrir gosi þrátt fyrir litla skjálftavirkni Reyndu að kveikja eld í bílastæðahúsi Ekkert Eurovision og hreindýr sem heldur að það sé hundur Til skoðunar hvort ljósin hafi verið græn Ósáttur með ákvörðunina: „Mér finnst Rúv verða aðeins leiðinlegra fyrir vikið“ Maðurinn handtekinn aftur í tengslum við mannslátið Milduðu dóm konu sem braut á drengjum og einn vildi ekki refsa Ísland meðal ríkja sem vilja endurskoða túlkun Mannréttindasáttmálans Ísland verður ekki með í Eurovision Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Reiknar með fljótri og góðri ákvörðun fyrir Ísland Óska eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi Kalla eftir sérstakri umræðu um málefni skólameistara og framhaldsskóla Tölvuárás á kerfi Grundarheimilanna Úlfar þögull sem gröfin Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Sjá meira