Innlent

Óttast synjun nýrra samninga um Icesave

Hollendingar og Bretar vilja tryggja að verði samningar um Icesave teknir upp að nýju verði niðurstaða þeirra endanleg, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir leggja áherslu á að stjórnmálaflokkar hérlendis verði samstiga um að virða niðurstöðu slíkra samninga, verði af þeim. Ekki komi til greina að ferlið endurtaki sig; undirrituðum samningum verði breytt eftir langar umræður á Alþingi.

Erlend ríkisstjórn hefur tekið að sér, í umboði Íslendinga, að ræða við deiluaðila um mögulega nýja fleti á málinu. Þá hafa fjölmargir boðist til að verða sáttasemjarar, bæði fyrrum ráðherrar og forsetar ríkja. Ríkisstjórn Íslands hefur hins vegar ekki leitað til neins, hvorki formlega né óformlega.

Synjun Ólafs Ragnar Grímssonar hefur vafist fyrir Hollendingum og Bretum og óttast þeir að verði opnað á samninga, án þjóðaratkvæðagreiðslu, gæti komið til þess að forsetinn synjaði þeim einnig.

Þreifingar hafa haldið áfram á milli Íslendinga og viðsemjenda þeirra um Icesave, Hollendinga og Breta. Þær hafa verið á mismunandi stigum stjórnsýslunnar, allt frá ráðherrum niður í starfsfólk sendiráða. Jafnvel var búist við tíðindum af málinu í gær, en engin bárust. Vonast er eftir því að málið skýrist um helgina.

Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Bretar og Hollendingar vísi í fyrri samþykktir og samninga þegar rætt er um möguleikann á því að taka samninga upp að nýju. Þeir meti það svo að Íslendingar hafi skuldbundið sig fyrir löngu til að greiða lágmarkstryggingu innstæða, 20.887 krónur. Það sé því ekki til umræðu að falla frá þeirri kröfu.

Slíkar skuldbindingar er að finna í fjölda skjala, allt frá yfirlýsingum og fréttatilkynningum til samþykkta á Alþingi. Til dæmis segir í samþykkt Alþingis frá 5. desember 2008: „Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum."

Vonast er eftir því að það skýrist sem fyrst, helst nú um helgina, hvort flötur sé á nýjum samningum. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að skýrist það ekki á allra næstu dögum muni menn gefa þann kost upp á bátinn og einbeita sér þess í stað að þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fara á fram um málið 6. mars.- kóp /






Fleiri fréttir

Sjá meira


×