Innlent

Þyrla sótti sjúkling á Snæfellsnes

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi til að koma til móts við sjúkrabíl, sem sendur hafði verið af stað frá Stykkishólmi með sjúkling, sem hafði fengið alvarlega kransæðastíflu.

Þyrlan og sjúkrabíllinn mættust við Kaldármela á sunnanverðu Snæfellsnesi, þaðan sem þyrlan flutti sjúklinginn til Reykjavíkur, þar sem hann var lagður inn á hjartadeild Landsspítalans.

Líðan hans var stöðug á meðan á flutningnum stóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×