Níu manns í haldi vegna aðgerða lögreglu 8. janúar 2010 18:38 Mynd/GVA
Átta kíló af hvítum efnum og meira en fjögur þúsund e-töflur hafa náðst í aðgerðum lögreglu gegn fíkniefnasmyglurum undanfarnar vikur. Níu manns eru í haldi vegna þessara aðgerða. Um fjögur aðskilin mál er að ræða. Rúmenskur karlmaður og meintur vitorðsmaður hans eru í haldi eftir að Rúmeninn var tekinn á Leifsstöð með hálft kíló af kókaíni. Hann var að koma frá Kaupmannahöfn. Þrír Litháar, tveir karlar og ein kona, eru í haldi eftir að þrjú kíló af metamfetamíni og 4.200 e-töflur fundust í bíl sem var á leiðinni til landsins með Norrænu. Tveir Litháar til viðbótar er í haldi í Færeyjum en Europol hefur aðstoðað Íslendinga við rannsóknina, Þá eru tveir Íslendingar í haldi eftir annar þeirra var tekinn með fjögur kíló af amfetamíni við komuna til landsins. Hann var að koma frá Berlín. Þegar hann var handtekinn vísaði hann á meintan vitorðsmann sem náðist skömmu síðar. Að lokum er svo erlendur karlmaður á fimmtugsaldri og íslensk kona á þrítugsaldri í haldi en þau voru tekin þegar þau voru að koma með flugi frá Bandaríkjunum. Í fórum þeirra fundust 800 grömm af kókaíni. Þau hafa ekki áður komið við sögu hjá lögreglu. Málin fjögur eru til rannsóknar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum hins vegar.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sjá meira