Skýrslur Bandaríkjamanna óþolandi 30. mars 2010 05:00 Össur Skarphéðinsson
Óþolandi og óviðeigandi er í samskiptum vinaríkja að til séu leyniskýrslur um íslenska stjórnmálamenn og ekki síður að þær séu varðveittar með þeim hætti að þær leki ítrekað í fjölmiðla. Svo segir utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, um bandarískar skýrslur sem birtust um hann, Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra og Albert Jónsson sendiherra á vef Wikileaks í gær. „Þetta er í annað skipti sem þetta gerist og það þýðir að menn hafa varann á sér í samskiptum við utanríkisþjónustur sem haga sér með þessum hætti,“ segir Össur. Æðsti yfirmaður bandaríska sendiráðsins á Íslandi hafi verið boðaður á fund með ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins þar sem þessu var mótmælt. Fulltrúi Bandaríkjamanna hafi ekki getað skýrt lekann, en svo virðist sem upplýsingarnar hafi ekki komið úr sendiráðinu við Laufásveg. „Þetta er alveg með eindæmum, ekki síst í ljósi þess að skýrslur sem menn vilja fá birtar, um nafngreinda Íslendinga, þær fást ekki birtar,“ segir hann og vísar þar til beiðni ráðuneytisins um að Bandaríkjamenn leyfi fjölskyldu Halldórs Laxness að sjá leyniskjöl um hann. Í Wikileaks-skjölunum segir að Albert Jónsson, þáverandi sendiherra í Washington, hafi mótmælt því sem hann hafi talið ófullnægjandi útskýringar Bandaríkjamanna á fangaflugi CIA í íslenskri landhelgi. Samt hafi hann unnið að því með bandarískum diplómötum að gera lítið úr fangafluginu opinberlega. Um þetta segir Össur: „Ég geri ráð fyrir því að Albert Jónsson, aðalræðismaður okkar í Færeyjum, hafi ekki gert neitt sem hann var ekki beðinn um af þáverandi yfirboðurum sínum, og hafi því ekki brotið nein fyrirmæli.“- kóþ
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Fleiri fréttir Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Sjá meira