Ekki kominn með nýtt starf 20. janúar 2010 04:00 Hættur Þórhallur Gunnarsson er hættur á RÚV. Hann segist skilja við Ríkissjónvarpið í góðum höndum. Páll Magnússon segir að uppsögnin hafi komið honum á óvart.
Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins og ritstjóri Kastljóssins, hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Hann tilkynnti Páli Magnússyni útvarpsstjóra um ákvörðun sína á mánudagskvöld og greindi síðan samstarfsfólki frá þessari ákvörðun sinni í gær. „Ákvörðunin er tekin í mestu vinsemd og það er enginn ágreiningur sem liggur hér að baki. Ástæðan fyrir uppsögninni er persónuleg,“ segir Þórhallur en uppsögnin tók strax gildi í gær. Þórhallur bjóst þó við að hann yrði eitthvað á vappi í Efstaleiti næstu daga. Hann segist ætla að hugsa málið næstu daga, hann hafi ekki gert það upp við sig hvort þetta sé endapunkturinn á fjölmiðlaferlinum. „Ég horfi sáttur yfir farinn veg og skil við Ríkissjónvarpið í góðum höndum.“ Hann neitar því að vera kominn með nýja vinnu, uppsögn sín snúist ekki um slíkt. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir uppsögn Þórhalls ekki tengjast fjárhagsstöðu RÚV og viðurkennir að hún hafi komið honum í opna skjöldu. „Ég skal alveg viðurkenna það að ég dauðsé eftir Þórhalli, hann hefur staðið sig vel.“ Aðspurður hvort leit að eftirmanni hans sé þegar hafin segir Páll svo ekki vera. „Staðgenglar hans taka við, Jóhanna Jóhannsdóttir mun sinna starfi dagskrárstjóra og Sigmar Guðmundsson verður ritstjóri Kastljóssins. Þegar svona kemur upp á má síðan búast við því að menn endurskoði eitthvað skipulagið,“ segir Páll. - fgg
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira