Óttast vímuhughrif úr MP3-skrám 21. júlí 2010 04:00 Fjölmiðlar beggja vegna Atlantsála greina nú frá því að ungmenni reyni nú að komast í vímu með hljóðskrám. „
Stafræn eiturlyf" sem sækja má á Netið ógna velferð ungmenna, að því er segir á fréttavef News9.com í Oklahoma í Bandaríkjunum. Þar vestra hafa skólayfirvöld og samtök foreldra áhyggjur af því að ungdómurinn sækir mp3-hljóðskrár með upptökum sem eiga að geta valdið vímuhughrifum ef á þær er hlustað. Neyslan er kölluð I-Dosing. Vísað er til þess að á vefjum á borð við YouTube megi finna fjölda upptaka af ungu fólki að prófa sig áfram með þessa hluti. Í umfjöllun tímaritsins Psychology Today segir hins vegar að ekki sé ástæða til að hafa af þessu miklar áhyggjur, I-Dosing sé útgáfa af löngu þekktri tækni. Árið 1839 hafi Heinrich Wilhelm Dove uppgötvað að framkalla mætti hughrif með því að láta fólk hlusta á tvo stöðuga tóna á mismunandi tíðni, hvorn með sínu eyra. Þá virðist fólki sem það hlusti á hraðgengan takt. Tæknin mun hafa verið hent á lofti af ýmsum „gervivísindum" þótt hún hafi líka verið notuð af læknum til að fást við svefntruflanir, rannsaka heyrn og við kvíðaröskun. Í umfjöllun Psychology Today segir að meira vafamál sé hvort upptökur þessar geti aukið framleiðslu dópamíns hjá þeim sem hlustar og litlar líkur séu á að setja þurfi hljóðskrár þessar í flokk með eiturlyfjum.- óká
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Sjá meira