Innlent

Fjölmenni á stofnfundi Sjálfstæðra Íslendinga

Benedikt Jóhannesson, formaður.
Benedikt Jóhannesson, formaður. MYND/Af heimasíðu samtakanna

Fjölmenni var á stofnfundi Sjálfstæðra Evrópumanna í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Á heimasíðu hinna nýstofnuðu samtaka segir að færri hafi komist að en vildu og eru stofnfélagar um 200.

Þá segir að Benedikt Jóhannesson hafi verið kjörinn fyrsti formaður hins nýja félags en aðrir í stjórn til tveggja ára eru Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Pawel Bartoszek Sigrún Ingibjörg Gísladóttir. Til eins árs voru kjörin Halldór Halldórsson, Baldur Dýrfjörð og Hanna Kristín Friðriksson.

Hér má skoða heimasíðu félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×