Faðir stúlku með hvítblæði vill frekari rannsóknir 30. ágúst 2010 14:49 Óskar Svavarsson, faðir Rósalindar. „
Ég vil helst að Lýðheilsustöð og umhverfisráðuneytið taki þetta að sér," segir málarameistarinn Óskar Svavarsson, en fimm ára gömul dóttir hans, Rósalind, greindist með hvítblæði vegna hárra rafsegulmengunar að mati föðurins. Þetta segir hann vegna niðurstöðu rannsóknar Geislavarna ríkisins og Brunamálastofnunnar á rafsegulmengun. Rúmlega 130 heimili voru rannsökuð en í ljós kom að rafsegulmengun var ekki yfir hættumörkum og sambærileg því sem gengur og gerist í Svíþjóð. Skýrslan kom út fyrir helgi en hún átti að koma út í vor. Í niðurstöðu Geislavarna og Brunamálastofnunnar segir að ekki sé tilefni til þess að rannsaka málið betur. Þessu er Óskar ósammála og vill Lýðheilsustöð og umhverfisráðuneytið í málið. Óskar heldur því fram að þrjú börn hafi greinst með hvítblæði vegna rafsegulmengunar. Hann segir það alvarlegt mál. Áður en rafmagnið var lagað á hans heimili var fjölskyldan ítrekað veik, til að mynda með höfuðverki. Svo kom reiðarslagið; Rósalind greindist með hvítblæði og tekst enn á við sjúkdóminn þrátt fyrir að hún sé eingöngu fimm ára gömul. „Rósalind er veik en hefur sjaldan verið jafn frísk," segir Óskar sem hefur barist hart fyrir betrumbótum varðandi rafsegulmengun. Skýrslan nú er afrakstur þeirra baráttu. Þá tókst Óskari að breyta tæknilegum tengiskilmálum hjá rafvirkjum. Það eykur líkurnar á því að annað eins endurtaki sig ekki á öðrum heimilum. Óskar hyggst sækja mál gegn Orkuveitu Reykjavíkur vegna veikinda dóttur sinnar. Hann segist hinsvegar ekki á höttunum á eftir peningum. „Stærsti sigurinn eru ekki peningar heldur að ef barn greinist með hvítblæði þá sé það ekki vegna rafsegulmengunar," segir Óskar sem hittir foreldra tveggja annarra barna sem greindust með hvítblæði vegna rafsegulmengunar. Spurður hvað taki nú við svarar Óskar því að honum þyki eðlilegast að Lýðheilsustöð taki að sér rannsókn mála sem og umhverfisráðuneytið. Vandamálið sé augljóslega til staðar og það megi fyrirbyggja á marga vegu.
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Sjá meira