Innlent

Funda með framkvæmdastjóra AGS

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gylfi Magnússon og Steingrímur J. Sigfússon ætla að funda með Strauss-Kahn. Mynd/ Anton Brink.
Gylfi Magnússon og Steingrímur J. Sigfússon ætla að funda með Strauss-Kahn. Mynd/ Anton Brink.
Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra munu funda á morgun með Dominique Strauss-Kahn framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Murilo Portugal aðstoðarframkvæmdastjóra í höfuðstöðvum sjóðsins í Washington. Þeir munu ræða samstarf íslenskra stjórnvalda og AGS og efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar með stuðningi sjóðsins.

Í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu kemur fram að ráðherrarnir muni einnig eiga fundi með fulltrúum bandarískra stjórnvalda og fastafulltrúum í stjórn sjóðsins. Með í ferðinni eru embættismenn frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu og Seðlabanka Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×