Styðja félög eins og kostur er 26. janúar 2010 02:45 Í skýrslu UNESCO frá árinu 2007 kemur fram að áætlað sé að um 300 þúsund munaðarlaus börn séu á Haítí. Víst er að sú tala hefur hækkað verulega eftir jarðskjálftann fyrr í mánuðinum. Nordicphotos/AfP
Skapist skilyrði til að koma á formlegu ættleiðingarsambandi við Haítí mun dómsmálaráðuneytið styðja við ættleiðingarfélögin eins og kostur er, segir Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra. Íslensk ættleiðing hefur lýst áhuga á ættleiðingum frá Haítí í kjölfar náttúruhamfaranna í landinu í bréfi til ráðherra. Ragna segist skilja erindið þannig að ætli alþjóðasamfélagið að bregðast við ástandinu með því að ættleiða börn úr landi sé skorað á íslensk stjórnvöld að láta ekki sitt eftir liggja. Ekki sé farið fram á það að íslensk stjórnvöld taki upp á sitt einsdæmi að hafa frumkvæði að ættleiðingum frá Haítí meðan ástandið í landinu sé svo viðkvæmt. Skiljanlegt er að myndir af hörmungunum á Haítí veki upp sterkar tilfinningar, og óskir um að börnin verði ættleidd til annarra landa. Aldrei á að taka ákvörðun um ættleiðingu eða varanlega umönnun barns strax í kjölfar hamfara eins og urðu á Haítí, segir í yfirlýsingu frá SOS Barnaþorpum. Samtökin vinna að því ásamt öðrum hjálparsamtökum að tryggja börnum á Haítí umönnun, skjól, mat, vatn, föt og öryggi. Markmið samtakanna er að sameina fjölskyldur þegar því verður við komið.- bj
Mest lesið Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent „Það verður boðið fram í nafni VG“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Innlent „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Innlent Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Fleiri fréttir „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Sjá meira