Innlent

Tukthúsklefar í kjallara Útvarpshússins

Kristján L. Möller samgönguráðherra upplýsti á mótmælafundi á Egilsstöðum í gær að sú hugmynd hefði verið rædd í ríkisstjórn að taka Útvarpshúsið í Efstaleiti undir lögreglustöð, enda væri gott pláss fyrir tukthúsklefa í kjallaranum.

Mótmælafundir voru haldnir bæði á Egilsstöðum og Ísafirði í gær gegn þeirri ákvörðun að að skera niður rekstur svæðisstöðva Ríkisútvarpsins. Ráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Kristján L. Möller hlýddu á mótmælendur fyrir austan.

„Ég hef það á stundum á tilfinningunni það sé farið í þetta gagnvart stöðvunum vegna þess að þeir ætli okkur þingmönnum landsbyggðarkjördæmanna að koma færandi hendi með einhverjar fjárfúlgur," sagði Kristján.

Fátt var um svör þegar spurt var hvort hætt yrði við niðurskurðinn.

„Við fengum til dæmis fulltrúa meirihlutaflokkanna á þingflokksfundi í fyrradag til að fara yfir þessi mál. Þannig að já við erum að reyna að setja okkur í inn í það því okkur er sjálfsögðu ekki sama um það hvernig hvernig þessir hlutir hafa þróast," sagði Steingrímur aðspurður hvort þeir ætluðu að beita sér gegn niðurskurði svæðisstöðvanna.

Kristján upplýsti að hann hefði setið í ríkisstjórn þar sem rætt var hvort taka mætti Útvarpshúsið til annarra nota.

„Ég heyrði meira og það var að nota húsnæðið í Efstaleiti undir lögreglustöð fyrir höfuðborgarsvæðið. Mér skilst að það sé gott pláss niðri í kjallara fyrir tukthúsklefa," sagði Kristján.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×