Landsvirkjun veitir Ómari risastyrk 20. júlí 2010 13:37 Ómar Ragnarsson fær veglega afmælisgjöf frá Landsvirkjun.
Landsvirkjun hefur ákveðið að gefa Ómari Ragnarssyni veglega afmælisgjöf - 2 milljónir króna í styrk. Athafnamaðurinn Friðrik Weisshappel hóf söfnunina handa Ómari en fram kom í viðtali við Ómar í helgarblaði DV að hann væri nær gjaldþrota og hefði ekki efni til að klára einar níu heimildarmyndir sem hann hefði í framleiðslu um íslenska náttúru. Á heimasíðu Landsvirkjunnar kemur fram að Landsvirkjun hefur ákveðið að taka þátt í söfnun til styrktar Ómari Ragnarssyni og veita honum styrk að andvirði 2 milljóna króna. Markmið framlags Landsvirkjunar er að styðja við upplýsta og vandaða umræðu um umhverfismál og nýtingu náttúruauðlinda, þar sem ólíkar skoðanir koma fram. Þar segir jafnframt að Ómar sé einn af þeim sem hefur lagt mikið af mörkum til umræðu um umhverfismál og nýtingu náttúrunnar á undanförnum árum. Hann hafi í fjöldamörg ár kynnt almenningi náttúruundur og fyrirbrigði, vakið athygli á umhverfisvandamálum og spurt spurninga um nýtingu og vernd íslenskrar náttúru. Þessar spurningar eru sambærilegar þeim sem Landsvirkjun stendur frammi fyrir í sínum rekstri og framtíðarsýn. „Landsvirkjun vill leggja sitt af mörkum til þess að stuðla að aukinni umræðu á þessum vettvangi. Með því að dýpka umræðuna má nálgast vandaða og upplýsta niðurstöðu um nýtingu náttúruauðlinda sem góð sátt á að geta ríkt um í samfélaginu. Framlag Ómars til umræðunnar hefur verið mikilvægt og við styðjum hann til að halda áfram á þessari braut", segir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.
Tengdar fréttir Weisshappel safnar fyrir skuldugum Ómari Ragnarssyni Friðrik Weisshappel, veitingamaður í Kaupmannahöfn, hefur stofnað Facebook-síðu þar sem hann hvetur fólk til að gefa Ómari Ragnarssyni eitt þúsund krónur í sjötugs afmælisgjöf sem þökk fyrir ómetanleg störf í þágu íslenskrar náttúru. 16. júlí 2010 21:02 Ómar týndi debetkortinu sínu Ómar Ragnarsson kvikmyndagerðarmaður mun ekki upplýsa um árangur fjáröflunarinnar fyrr en á laugardaginn. Hann er í Veiðivötnum og verður þar út vikuna en hann hefur ekki aðgang að netbanka. Ómar hefur auk þess týnt debetkortinu sínu. 20. júlí 2010 11:53 Ómar þekkir Weisshappel ekki neitt „Þetta er eitt það óvæntasta sem hefur gerst fyrir mig,“ segir Ómar Ragnarsson í samtali við Vísi. Friðrik Weisshappel athafnamaður og kaffihúsarekandi, stofnaði Facebook síðu þar sem hann hvetur fólk að gefa Ómari þúsund krónur í afmælisgjöf. Ómar sagði í helgarviðtali við DV að hann væri stórskuldugur og skuldar fimm milljónir vegna kvikmyndagerðar. 18. júlí 2010 15:36 Ómar Ragnarsson: Orðlaus, hrærður og þakklátur „Ég virðist hafa vitað minnst allra um einhvert óvæntasta atvik, sem mig hefur hent á lífsleiðinni, og kem af fjöllum í bókstaflegri merkingu," segir Ómar Ragnarsson á heimasíðu sinni. 17. júlí 2010 18:33 Weisshappel gefur Ómari 100 þúsund - skorar á önnur fyrirtæki „Laundromat kaffihúsið mitt ætlar að gefa honum 100 þúsund kall og við skorum á einhver önnur tíu íslensk fyrirtæki að gefa líka sömu upphæð," segir kaffihúsaeigandinn Friðrik Weisshappel í Kaupmannahöfn. 17. júlí 2010 14:20 Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira
Weisshappel safnar fyrir skuldugum Ómari Ragnarssyni Friðrik Weisshappel, veitingamaður í Kaupmannahöfn, hefur stofnað Facebook-síðu þar sem hann hvetur fólk til að gefa Ómari Ragnarssyni eitt þúsund krónur í sjötugs afmælisgjöf sem þökk fyrir ómetanleg störf í þágu íslenskrar náttúru. 16. júlí 2010 21:02
Ómar týndi debetkortinu sínu Ómar Ragnarsson kvikmyndagerðarmaður mun ekki upplýsa um árangur fjáröflunarinnar fyrr en á laugardaginn. Hann er í Veiðivötnum og verður þar út vikuna en hann hefur ekki aðgang að netbanka. Ómar hefur auk þess týnt debetkortinu sínu. 20. júlí 2010 11:53
Ómar þekkir Weisshappel ekki neitt „Þetta er eitt það óvæntasta sem hefur gerst fyrir mig,“ segir Ómar Ragnarsson í samtali við Vísi. Friðrik Weisshappel athafnamaður og kaffihúsarekandi, stofnaði Facebook síðu þar sem hann hvetur fólk að gefa Ómari þúsund krónur í afmælisgjöf. Ómar sagði í helgarviðtali við DV að hann væri stórskuldugur og skuldar fimm milljónir vegna kvikmyndagerðar. 18. júlí 2010 15:36
Ómar Ragnarsson: Orðlaus, hrærður og þakklátur „Ég virðist hafa vitað minnst allra um einhvert óvæntasta atvik, sem mig hefur hent á lífsleiðinni, og kem af fjöllum í bókstaflegri merkingu," segir Ómar Ragnarsson á heimasíðu sinni. 17. júlí 2010 18:33
Weisshappel gefur Ómari 100 þúsund - skorar á önnur fyrirtæki „Laundromat kaffihúsið mitt ætlar að gefa honum 100 þúsund kall og við skorum á einhver önnur tíu íslensk fyrirtæki að gefa líka sömu upphæð," segir kaffihúsaeigandinn Friðrik Weisshappel í Kaupmannahöfn. 17. júlí 2010 14:20