Lífið

Ómar þekkir Weisshappel ekki neitt

Boði Logason skrifar

„Þetta er eitt það óvæntasta sem hefur gerst fyrir mig," segir Ómar Ragnarsson í samtali við Vísi. Friðrik Weisshappel athafnamaður og kaffihúsarekandi, stofnaði Facebook síðu þar sem hann hvetur fólk að gefa Ómari þúsund krónur í afmælisgjöf. Ómar sagði í helgarviðtali við DV að hann væri stórskuldugur og skuldar fimm milljónir vegna kvikmyndagerðar.

„Ég á ekki orð, því ég þekki þennan mann ekki neitt. Ég var á fleygiferð út um allt land og hafði ekki hugmynd um þetta fyrr en ég sá þetta á internetinu. Þetta er eitt það óvæntasta sem hefur gerst fyrir mig," segir Ómar.

Reikningurinn er í hans nafni og ætlar hann að fara strax á morgun í bankann að skoða hversu mikið hann hefur fengið. „Ég er ekki með svona netbanka, en að sjálfsögðu fer ég í bankann og ætla svo að þakka fyrir mig. Ég er hrærður yfir því að þetta geti gerst."

Nú hafa yfir fjögur þúsund manns skráð sig á fésbókarsíðuna.

Hægt er að leggja inn á reikning Ómars sem hefur verið stofnaður en reikningsnúmerið er 0130 26 160940 og kennitala 160940 4929.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×