Innlent

Innanríkisráðuneyti taki yfir varnarmálaverkefnin

Í skýrslu sem starfshópur skilaði um mánaðamótin kemur fram að kostnaðarsamt yrði að flytja sérhæfða starfsemi aðgerðastjórnunar Varnarmálastofnunar. Fagleg og fjárhagsleg rök séu fyrir því að sú starfsemi verði á sama stað áfram. Fréttablaðið/Stefán
Í skýrslu sem starfshópur skilaði um mánaðamótin kemur fram að kostnaðarsamt yrði að flytja sérhæfða starfsemi aðgerðastjórnunar Varnarmálastofnunar. Fagleg og fjárhagsleg rök séu fyrir því að sú starfsemi verði á sama stað áfram. Fréttablaðið/Stefán

Gert er ráð fyrir að Varnarmálastofnun verði lögð niður frá og með næstu áramótum. Verkefni hennar verði færð annað, en hluti þeirra síðan færður aftur undir eitt þak ásamt öðrum verkefnum sem nú eru sum hver á hendi Ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslu og Vaktstöð siglinga. Ný stofnun taki því yfir hluta verkefnanna.

Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp þar um sem byggir á skýrslu starfshóps. Formaður hópsins var Guðmundur B. Helgason, fyrrum ráðuneytisstjóri. Þar kemur fram að ekki sé óhjákvæmilegt að halda úti starfsemi sérstaklega aðgreindrar stofnunar um þau verkefni sem kveðið er á um í varnarmálalögum.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir einnig lagt til að móta nýja öryggisstefnu á grundvelli borgaralegrar starfsemi. Nýja stofnunin, verði af henni, verði algjörlega undir borgaralegum formerkjum.

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir það grundvallaratriði að ný stofnun verði á borgaralegum nótum. Skýr ásetningur ríkisstjórnarinnar sé að leggja af hernaðarlega hugsun í tengslum við stofnunina.

Samkvæmt skýrslunni er gert ráð fyrir að verkefni Varnarmálastofnunar færist að mestu til Landhelgisgæslu og Ríkislögreglustjóra fyrsta kastið. Varnar- og öryggismál í víðum skilningi myndi síðan sérstakan málaflokk í fyrirhuguðu innanríkisráðuneyti.

Forræði samskipta við Nató og alþjóðlegar stofnanir verður þó áfram á vegum utanríkisráðuneytisins. Yfirmaður varnarmála, í skýrslunni nefndur „Chief of Defense“, starfi á vegum innanríkisráðuneytis. Össur segir að verkefnin muni síðan færast til fyrirhugaðs innanríkis­ráðuneytis.

Starfsfólki Varnarmálastofnunar verður boðið starf hjá stofnunum sem taki við verkefnum hennar. - óká, kóp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×